þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
1.27.2005
I´m to sexy for my body...
Það er ekkert nýtt í´essu hérna. Bara lestur og aftur lestur.

Hápunktur dagsins hjá mér er án efa strætóferðin í ræktina og sá tími sem fer í að vera í ræktinni. Kappinn fór út á strætóstoppistöðina hérna fyrir utan og tók myndir af tímatöflunni með túrbósímanum sínum. Með þessum hætti sparast nokkrar mínútur sem annars færu í bið á stoppistöðinni því nú nægir bara að kíkja á myndina og sjá hvenær vagninn mætir á svæðið! Fyrir forvitna má sjá opinbera strætósíðu Bolognaborgar hér Ef horft er vel á má sjá kappann um borð í vagninum sem birtist...


Ég er búinn að sjá að það getur verið meinhollt að horfa á sjónvarp. Maður setur bara hlaupabrettið í gang og horfir á einhverja bíómynd á meðan. Þau reyndar voru búin að vera með The Monc, eða eitthvað þannig - með Chow Yun Fat held ég, í gangi í 2 vikur samfellt. Kappinn tók sig því til um daginn og bað þau um að gera eitthvað í þessu, t.d. að skipta um bíómynd. Það var og gert með det samme og nú er ég búinn að horfa á X-Men 2 alveg í næstum því heila viku. Spurning um að ég fái bara fjarstýringuna í hendur og mixi þetta. Annars er maður kominn í svo gott form hérna...er búinn að hlaupa svo mikið að ég fór með nokkrum félögum mínum úr ræktinni að hlaupa um daginn. Kappinn nottla tók myndavélina með og smellti nokkrum myndum. Uppáhaldsmyndin er án efa þessi hérna þar sem kappinn var kominn langt á undan félögunum í mark og tók því mynd af restinni á leiðinni í mark, svona til að undirstrika yfirburði sína.

Bið bara að heilsa.
L8R
|
1.23.2005
Hellllúúúú
Var að horfa á fréttirnar hérna á netinu. Sá að það er búið að setja upp svona bráðabirgðar-flóðbylgju-mælingatæki þarna við indlandshaf. Þetta voru svona 2 mælitæki, annað þeirra var stafrænt en hitt svona handvirkt vatnshæðarmælingartæki. Þegar ég horfði á þetta fór ég að spá í einu, sko... þetta handvirka vatnshæðingarmælingartæki, er þetta ekki eitthvað djók. Ég er kannski ekki alveg að skilja þetta rétt, vona allavega að svo sé. Skv. því sem kemur fram í fréttinni þá getur fólk séð þegar vatnshæðin er farin að hækka mjög mikið og það getur gefið fólki til kynna hvenær það skuli fara að hlaupa af ströndinni. Ok, nú er sko tvennt í þessu, virkar svona tsunami-flóðbylgja ekki þannig að fyrst sópast vatnið allt burt af ströndinni? Mig minnir það allavega eftir mjög svo góðar líking Guðbjarts í jarðfræði í MR. Slíkt tæki kæmi þá nú ekki miklum notum til að sýna vatnshæðina, ekki nema þá að fólk gæti séð að það væri bara engin vatnshæð, bara komin í mínus örugglega. Ok, svo er hitt...miðað við myndirnar af þessu öllu sem hafa verið í gangi síðan þetta gerðist þá tekur þetta nú mjög skjótan tíma að komast að landi og bruna yfir það. Efast um að einhverjir eyjaskeggjar fari eitthvað að kíkja á þessi 2 prik með spotta á milli sem sett voru í sandinn þarna á ströndinni þeirra, þegar megatúrbóflóðbylgja er að komast, ég meina - bara að sjá slíka öldu ætti nú örugglega að vera nóg... Ég hlýt að vera eitthvað að misskilja þessa frétt, einhver að leiðrétta mig takk fyrir....Annars er ekkert nýtt í þessu, lesalesalesalesa....

over and out
|
1.20.2005
Höfum þetta bara stutt núna. Geri ekkert nema að lesa þannig að það er svosem ekki mikið að gerast hérna.

Það snjóaði alveg geggjað mikið hérna í fyrradag. Ítalinn er auðvitað við því búinn, fólk nottla veit ekki hvað vetrardekk eru og fleira slíkt. Þið getið rétt ímyndað ykkur kaosið sem myndaðist hérna, ekki nema 25 km röð á hraðbrautinni hérna fyrir utan sem liggur til Flórens. Pant vera síðasti bíll í þeirri röð!! Allar almenningssamgöngur lágu niðri, m.a.s. miðbærinn hérna varð að einum tappa. Nú er aðeins búið að hlýna aftur þannig að þetta er orðið að svona slabbógeði.

Vil benda Slicknum á að það lýtur út fyrir að ég sé kominn í harða samkeppni við hann um sekkstitilinn, við skulum nú ekkert fara nánar út í það að svo stöddu...Steig því miður á vigtina um daginn og kappinn var nú ekkert voðalega sáttur við það sem hún sýndi honum.

over and out
|
1.17.2005
Daginn...
Varð vitni að miður skemmtilegum hlut hérna rétt áðan. Sá mann deyja í beinni og þá er ég sko að meina Í BEINNI gott fólk. Maðurinn var að keyra, allt í einu kemur bíll brunandi út götu og út á gatnamót og nær ekki að hægja á sér, klessir á annan bíl og that´s it. Hann var dreginn út úr bílnum og lagður á götuna og hjartahnoð reynt í svona 20 mín örugglega áður en sjúkraliðarnir á staðnum gáfust upp. Þeir héldu að hann hefði jafnvel fengið slag undir stýri, hvernig bílnum var ekið benti til þess líka, þetta var ekki mikil ferð og gærinn virtist vera að reyna að afstýra árekstri, miðað við það hvernig hann klessti á allavega. Nú liggur maðurinn bara undir laki hérna beint fyrir utan útidyrahurðina mína. Ég var að koma heim með strætó og sá bara verið að hnoða mann í götunni. Sá framan í hann og það var ekkert voðalega spes verð ég að segja, hann var náfölur með rör upp í sér og augun uppglennt, frekar hrikaleg sjón. Svo er búið að ná í nærstadda og þeir eru hérna fyrir neðan og eru bara viti sínu fjær, sem er svosem eðlilegt.
Merkilegt hvað þetta getur gerst hratt. Maður spáir aldrei neitt í að svona lagað geti hent mann, enda svosem engin ástæða til þess. Held samt að maður ætti að læra að njóta hlutanna á meðan maður hefur þá meira en hingað til. Ok, nóg um látna manninn hérna niðri.

Fór til Mestre í gær, frænkan býr þar sko. Þar var haldin afmælisveisla fyrir mig og frænda minn sem á afmæli í dag. Fórum í bíó, svona í tilefni dagsins maður!!!, sáum mynd sem ég held að heiti Saw á enskunni (bara ítalskt heiti á myndinni auðvitað og það var L´Enigmista eða gátukallinn eða eitthvað þannig - af þessu má sjá að auðvelt er að draga þá ályktun að myndin heitir Saw á ensku). Þetta er án efa ein ógeðfelldasta mynd sem ég hef séð. Ég er nú vanalega alveg til í að sjá svona svokallaðar splatter myndir og fjöldamorðingja og slíkt en þetta var nú bara einum of. Menn að saga af sér líkamsparta til að komast út úr einhverju búri, fólk sem hleypur á gaddavíra þar sem eina leiðin út er í gegnum þá en það nottla deyr, og það er nottla sýnt þegar gaurinn hleypur í gegnum endalaust mikið af gaddavír og drepst með inniyflin út og allt, þetta er algert ógeð. Hvering dettur mönnum í hug svona handrit var ég að spá, þetta hlýtur í alvöru að vera einhver geðsjúklingur sem skrifaði þetta, mamma hans fann svo gamla handritið hans inni í herberginu hans eftir að hann var lagður inn á stofnun og notað þetta efni til að komast í feitt! Það er ekki séns að heilvitamenn fari að skrifa eitthvað svona. Mér s.s. líkaði myndin ekkert ofsalega vel, leið líka illa eftir allt þetta ógeð sem var í gangi þarna.

Víkjum okkur þá niður á lestarstöð Mestre.
Þangað hélt kappinn kokhraustur kl.19:45 að staðartíma, fullviss um að fá miða heim til Bologna þrátt fyrir að verkfall ætti að skella á kl.21:00. Fór og keypti miðann úr svona sjálfsala og allt bara meiriháttar. Var svo kominn með annan fótinn í lestina þegar ákveðið var að tilkynna að þessi lest væri takmörkuð við ferð til Padova, sem er svona 30 mín ferð frá Mestre en frá Padova eru svona 5 dagar labbandi til Bologna þannig að ég ákvað nú bara að fara ekkert með þessari lest. Gisti þarna uppfrá hjá frænku og kom svo heim með fyrstu lest í morgun. Þetta reddaðist s.s. allt saman.
Núna sit ég bara hérna að reyna að plögga mega plott en það nefninlega að fara í bíó! Virðist ekki ætla að ganga þannig að ætli maður verði ekki bara að snúa sér aftur að bókunum, veitir víst ekki að.

Ég vil bara senda hérna persónulega kveðju. Benni! Þú ert að standa þig, gaman að fá kveðjuna frá þér. Takk fyrir það. Sá líka þínu síðu, held ég...eitthvað með mjög svo pólitísku ívafi, ekki satt?

Læt þetta vera nóg í bili,

L8R = S1A
|
1.15.2005
Sælinú
Takk takk, enn og aftur takk takk. Jújú mikið rétt aðdáendur góðir, Geburtstag kappans er í dag. Það var fyrir nákvæmlega 24 árum sem Kappinn leit dagsins ljós í veröld þessari. Mér skilst að það hafi nú verið skítaveður, svona í tilefni dagsins. Þetta ku víst hafa verið kaldasti dagur í manna minnum, eða eitthvað þannig.

Ég hélt upp á afmælið í gærkvöldi vegna fjöldaáskornana þar um. Fór á eitt öldurhúsa bæjarins og hitti fullt af liði þar. Ætlið við höfum ekki verið svona í kringum 20 manns og áttum Pleisið algerlega! Barinn er sá ódýrasti hér í bæ og lá því beinast við að hann yrði fyrir valinu. Þetta er nú ekkert spes Pleis, enginn Hverfis ef svo má að orði komast, t.d. er aldrei biðröð á þennan stað, sbr. aftur Hverfis, það er enginn skúli í dyrunum, sbr. Hverfis, og svo gleymir Gæinn sem á Pleisið stundum að rukka fyrir veitta þjónustu þar sem hann er svo upptekinn af því að hözzla stúlkur sem stunda Pleisið. Þetta var allavega gott kvöld og skemmtileg tilbreyting við lesturinn sem er alveg að gera þetta mjög morkið þessa dagana.

Fór í ræktina í dag, var bara á brettinu að horfa á Hot Shots myndina gömlu, veit ekki hvort þetta var númer 1 2 eða 3, eða hvort þær eru yfirhöfuð svona margar, en djöfull var þetta góð mynd. Skellti stundum upp úr eins og hálfviti þarna. Annars er nú ekki mikið í gangi hérna núna. Fer á morgun til Sylviu frænku að borða og chilla eitthvað. Svo er nottla aftur verkfall hjá lestarstjórum. Ástæða verkfallsins er slysið sem var hérna síðastliðinn föstudag þar sem dó fullt af liði. Hef barasta ekki rassgat að segja.

over and out
|
1.13.2005
Sæl veriði.

Ég vil byrja á að þakka þeim sem hafa sent mér afmæliskveðju í dag. Það eru nokkrir skal ég ykkur sko segja. Samt sem áður er fólk beðið með að reyna nú að halda aftur af sér, ekki láta undan spennunni. Afmælið er nú ekki fyrr en á laugardaginn sko, þeir sem þegar hafa sent Kappanum kveðju eru vinsamlegast beðnir um að endurtaka kveðjuna á laugardag.

Fór í gær á mótorhjóli um Bolognaborg. Við skulum bara kalla þetta mótorhjól en ekki vespu eins og líklegast væri réttast. Þetta var hið mesta gaman þótt ferðin hafi verið stutt. Fór á mótorhjólinu alla leið niður í bæ og til baka, þorði ekki meiru...Allt í allt hefi eg liklegast verid í u.þ.b. 12 mín og 47 sek á mótorhjólinu. Það eina sem skemmdi gamanið var hvað það var ÓGEÐSLEGA kalt að bruna um á mótorhjólinu kraftmikla. Hefði alveg eins getað verið ber að ofan held ég, fólk hefði nú ekki hatað það svona eftir jólin með belginn út í loftið...

Lesturinn gengur ágætlega, reyndar ekkert alltof vel en samt bara allt í lagi. Síðustu dagana hef ég áttað mig á hvað lagaorðaforði er ótrúlega morkinn og öðruvísi en allt annað. Þetta er allt svo sértækt eitthvað, félagarnir hérna heima (þeir fáu sem eru komnir aftur þ.e.a.s. því að fólk er jú ekkert að flýta sér neitt að koma aftur til að taka próf) skildu m.a.s. voðalega lítið hvað verið var að tala um í bókinni Diritti Internazionale Privato Italiano, nánar tiltekið í undirkaflanum (haldið ykkur nú fast) La disciplina internazionalprivatistica contenuta in norme di parte speciale e l´oppurtunitá di riferirsi particolarmente a quella relativa a materie per le quali precedentemente trovavano ampia applicazione norme di applicazione necessaria. Takk fyrir það. Eins og sjá má þá hefur höfundur bókarinnar ekki hagsmuni nemenda í fyrirrúmi heldur reynir að hafa nafnið á kaflanum jafnlangt, helst lengra, en kaflann sjálfan. Spurning um að einhver reyni að koma Þorgeiri Örlygs í samband við þennan mann því þeir deila sama áhugamáli, gera bækur eins dýrar og mögulegt er.

Þá komst ég líka að því í dag að eyrnatapparnir sem ég hef verið að nota eru orðnir helst til skítugir. Lagði þá á borðið og svo henti ég bók frá mér og hún fór ofan á þá. Þegar ég fór svo að leita að þeim fann ég þá ekki alveg strax, lyfti upp bókinni en þeir voru ekki undir henni. Lítur kappainn síðan ekki undir bókina og sér að þeir eru klístraðir fastir á bókinni, klístrið má þakka miklu magni eyrnamergs sem á töppunum er að finna. Nota nú aðra tappa en þessa þarna.


Nóg í bili,
over and out
|
1.10.2005
Alsæla
Já gott fólk, segja má að það sé alger alsæla í gangi hjá comrad Kappi þessa dagana. Erfitt er að gera sér grein fyrir hvar byrja skuli frásögn þá er útskýrir alsælu kappans. Byrjum bara á gærdeginum. Dagur kappans hófst nokkru fyrr en vanalegt er hér í kjarna Rómarveldis hins forna, um 8 Uhr (lesist á þýsku eftir kommuna). Lesið var allan daginn og veitti það kappanum meiriháttar hamingju, ekki laust við að fiðringur hafi farið um maga hans. Þá er gærdagur kappans útskýrður að mestu. Lesið var frameftir degi en er rökkva tók ákvað kappinn að hitta breska félaga sína á einu margra öldurhúsa Bolognaborgar. Kappinn ákvað að halda snemma til síns heima og var því kominn upp í rúm rétt eftir að klukkan sló 00:00 að staðartíma (GMT +1). Dagurinn í dag hófst á sömu nótum nema breytt var til að haldið í ræktina. Líkami og hugur runnu saman í eitt í þær heilu fimmtán mínútur sem Kappinn var á hlaupabrettinu. Meiriháttar hvað maður er dottinn úr formi, var nebbla í svo svakalega fínu formi fyrir jól! or not...Allavega, sjaldan sem það kemur fyrir að maður finni blóðbragð í munninum og verki í lungunum eins og þau hafi aldrei verið notuð, kenni alfarið jólunum um og Sekknum auðvitað líka. Þar sem kappanum leist nú ekkert á blikuna ákvað hann að hætta að hlaupa (skokka)...(rölta)...(labba hægt)...(...)og skella sér í lóðin. Þar var skynsemi höfð í fyrirrúmi og létt tekið á öllu. Morgundagurinn verður spennandi með meiru, spurning um hvort maður þurfi verkjalyf við harðsperrum/hassperum. Annars er ég að skrifa ömmu og afa bréf hérna, þau vildu heyra eitthvað frá barnabarni sínu á Ítalíu og varð ég fúslega við þeirri beiðni í dag. Hef ekki skrifað bréf á pappír forever held ég bara. Man reyndar þegar maður var mjög rómó hérna í gamladaga og sökum aðstæðna á þeim tíma var notast við pappír, blýant og ilmvatn...förum ekkert nánar út í það...
Gunnsan er farin af landi brott líka, sem og Sekkurinn. Spurning um að fara að breyta þessu viðurnefni í hlunkinn þar sem hann verður það líkalega við heimkomu sína. Ástæður þess tel ég einkum vera eftirfarandi:
Nr.1. Sekkurinn ákvað að taka bróður sinn með sér út og sá er nú ekkert fyrir eþíópískan matseðil
Nr.2. Sekkurinn "má" víst ekki hreyfa sig neitt þessa dagana, "skv. því sem læknirinn sagði" eins og fram kemur á blogginu hans. Tökum því nú með fyrirvara...
Vil minna fólk á að Gunna er að útskrifast og öll viljum við nú fá hana heim. Þar sem hún er nú mjög fátækur námsmaður þá hefur Þjóðarhreyfingin stofnað til söfnunar samhliða söfnun sem fram fer fyrir auglýsingu í New York Times. Söfnunin ber heitið " Gunnu heim ". Bent skal á símann 904-15-99 og dragast 5000 krónur frá við hvert símaat.

Eftirfarandi kveðja er víst mjög í tísku innan lagadeildar og sem auðmjúkur laganemi skal hér því sagt:

þetta hefur verið Kappinn í Bologna fyrir hönd hans sjálfs...
|
1.08.2005
Kominn heim (á hinn staðinn)
Jæja gott fólk, látið fagnaðarerindið berast út um allan heim! Kappinn er mættur aftur á svæðið, allt að verða vitlaust...ekki alveg.
Jæja, lagði af stað í gær og mætti á VIP-svæðið í dag. Fólk gæti spurt sig hví þetta hafi tekið jafn langan tíma og raun ber vitni. Til að útskýra stöðu mála þá vil ég bara byrja á að þakka icelandexpress fyrir að vera með allt á hreinu, þá á ég við að vera alveg on-time (klukkuktíma seinkun sem sett er upp á skjáinn í flugstöðinni þegar fólk er mætt alveg tveimur tímum fyrir upprunalegan brottfarartíma), nægt fótapláss (sama og ekkert), mjög fallegar flugfreyjur sem allar eru undir 25 ára (grömpí bíjatses sem eru ekki undir 40)(gleymdi einum hommaflugþjóni líka), ekkert smá hvað hægt er að halla sætunum án þess að bögga næsta mann (það er ekki hægt að halla þeim sko...), frábært eldhús(sómi í húsinu takk fyrir) en lendingin heppnaðist alveg frábærlega samt, öll hjól niður í einu og allur pakkinn. Á Stansted missti ég af síðustu vél til ítalíu, og þá er ég að meina hvar sem er á ítalíu (ekki bara Bo og surrounding area). Þetta reddaðist nú samt alveg allt saman þökk sé snillingnum Darra "Tipo" Úlfssyni aka Dario Olfson á UK soil. Fórum saman á hótelherbergi skammt frá Stansted því hann átti flug næsta dag til Rómar. Þar sem ég var líka strandaglópi ákváðum við bara að skella okkur saman í tvöfalda svítu á fyrrverandi hlöðu. Þetta var alveg fín gisting, ekkert að þessu. Rafmagnið fór reyndar af vegna óveðurs en annars bara allt í gúddí. Síðan flaug ég hingað til Bo í morgun og tók rútuna af vellinum hingað og hér sit ég nú sveittur og ógeðslegur og skrifa.
Á leiðinni hingað las ykkar maður Angels and Deamons, þetta er alveg ágætis bók en er bara alveg eins og DaVinci code. Held samt að þetta sé bókin sem kom út á undan þannig að DaVinci er eins og Angels víst. Framundan er sko þvílíkt excitement að fara í gang, maður er bara að fara að lesa eins og vitleysingur. Stefnt er að því að kappinn taki 4 próf í janúarmánuði og eigi frí í febrúar. Sjáum til hvernig lestur gengur, engar áhyggjur...læt unnendur kappans þokkalega vita hvernig gengur að halda áætlunina.
Í kvöld er hérna heima hjá okkur svakapartý, meiriháttar maður, ég er sko þvílíkt í stemmara johnson til að fara að djamma eitthvað. Svaf ekki rass í nótt eiginlega, gat ekkert sofið í flugvélinni, ætlaði að leggja mig í dag en þá var tilkynnt að verið væri að fara út að versla þannig að ég notaði tækifærið og dreif mig bara með. Var reyndar að átta mig á því núna áðan að ég á ekkert til að drekka, þá er ég að tala um hluti eins og djús og svoleiðis með morgunmatnum, læt bara kranavatnið duga. Áhangendur kappans muna eflaust hvernig það fór síðast, vikulöng refsing fyrir kranavatnsneyslu sem fólst í endalausri notkun kamarsins okkar ásamt frussukúki. (Minni yngri kynslóðir áhangenda minna að þetta er 18+ síða. Foreldrar athugið að hægt að er loka fyrir notkun barna á síðuna, veit ekki hvernig en það er hægt). Jæja, ég er víst búinn að segja allt sem gerst hefur hjá mér undanfarinn sólarhring. Bið ykkur vel að lifa og sé til hvort einhverju verði dritað hér niður á morgun.
over and out
|