Kappinn
Kominn heim
datt í hug að láta aðdáendur kappans vita að hann er kominn heim á klakann. Býð bara gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár. Sjáumst á næsta ári...
kv. Kappinn
|
Ekkert í gangi, part 2
Jújú, sama sagan hérna. Ekkert í gangi. Maður gat svosem alveg búist við þessu þegar flugið heim var pantað. Kappinn reyndar bjóst við að fá að taka þetta blessaða próf en alheimur veit hvernig það fór. Þannig að kappinn situr þessa dagana bara heima eða á lagadeildarbókasafninu að reyna að læra eitthvað. Gengur svona upp og ofan. Annars er það merkilegatsta sem kappinn tók sér fyrir hendur þessa vikuna án efa heimsókn hans á Motorshow hérna í Bologna. Þvílík skemmtun og unun að sjá þessar elskur allar saman, þá er átt við bílana sko. Þannig er nebbla mál með vexti að svakalegum bílum fylgja oftar en ekki hér í landi svakalegar skutlur líka. Kappinn nottla fylgdist aðeins með bílunum og engu öðru, hjá því var hinsvegar ekki komist að bera kvenfólkið augum þar sem það sat í mörgum tilfellum inni í bílunum, lá ofan á þaki bílsins, undir bílnum, stóð hjá bílnum með klæðarbút um sig miðja, lá ofan á húddinu ofl.ofl.ofl. Margar myndir voru teknar í tilefni dagsins en því miður er mánaðarlegur kvóti kappans búinn, þar sem myndasería foreldranna fyllir pláss mánaðarins. Á morgun verður svo farið á Bologna - Juventus. Öfundsjúkir mega gjarnan senda mér póst þess efnis.
over and out
|
Ekkert í gangi
Það er nákvæmlega ekkert í gangi hérna þessa dagana. Reyndar er alltaf einhversstaðar party og svona, manni nottla alltaf boðið, en þar sem kappinn hefur nú ákveðið að taka þetta föstum tökum, þ.e. námið, þá segir hann nei við fíkniefnadjöfulinn og frænda hans sem boðar áfengisneyslu. Lært var í allan dag og síðan tekin smá kría. Er núna bara að fara að borða kvöldmat með stelpunni sem býr hérna. Hún er alger steik þessi pía, átti að fara í próf í morgun en gat ekki drullast til að vakna fyrir það! Ég hélt að hún væri að grínast með þetta en svo var eigi. Þá spurði ég hana " e allora? " ( og hvað? ) Þá sagðist hún bara ætla að taka þetta í janúar... Svona er þetta víst hérna, það skiptir svosem ekki máli hvort maður nái prófi eða ekki, það er alltaf hægt að taka það aftur sé maður ekki sáttur við frammistöðu sína. Jújú, það er svosem ekki hægt að segja að það sé eitthvað stress í gangi hérna...
|
ND MEISTARI!!!
ND var að vinna titilinn!!! Til hamingju Gunna mín, alger snilld. Nú er bara spurning um hvort þetta komist í fréttirnar heima, hvernig er það...er ekki 5000 kall fyrir fréttaskot í DV???
|
Gunnsan er að gera góða hluti í Ameríkunni. Hún og háskólaliðið hennar, Notre Dame, eru komnar í úrslit í fótboltanum. Geggjaður árangur. Fyrir áhugasama þá geta þeir skoðað þetta
hérna. Þetta er pottþétt í fyrsta skipti sem íslendingur kemst í úrslit í NCAA keppninni. Þetta er ekkert smá keppni líka, allir háskólar í USA taka þátt í þessu, í mismunandi deildum auðvitað. ND er í eftstu deild og því má segja að þær séu með besta liðið í landinu, eða allavega annað af tveimur. Vic sá sér fært að fara á leikinn, gerði gott betur og tók með sér íslenska fánann. Spurning hvort hann hafi tekið myndavélina með og smellt af sér nokkrum myndum til að sanna þetta.
Í dag var, og er reyndar enn, ömurlegt veður. Algert úrhelli. Kappinn tók sig því til og ákvað að lesa í allan dag. Tók réttarsögu ítala og refsaði henni. Sami pakki á morgun...
|
Kvöldmatarboðið heppnaðist svona líka þrusu vel. Allir voru mjög ánægðir með matseld kappans. Eldaði Bæjonn skinku og hangikjet. Í forrétt var lax með ristuðu brauði og ég bjó til kokteil sósu og sagði þeim að setja á brauðið og laxinn oná, veit ekki hvort þetta sé gert í raun og veru en ég sagði þeim bara að þetta væri alveg ekta týpískur íslenskur réttur. Þau nottla vita ekki betur þannig að... Svo var boðið líka upp á brennsa, það rann ekkert voðalega vel oní liðið, tók nokkrar góðar myndir af því sem verða settar hérna inn síðar við tækifæri.
Fyrir harðkjarna kappaaðdáendur þá setti ég inn myndir af heimsókn foreldra minna hingað, þær eru til vinstri á síðunni undir frakklandsmynda-linknum.
Tímunum í skólnum lýkur formlega á miðvikudaginn, reyndar á þri þar sem það er frí á miðvikudag þar sem einhver heilagur maður lést þann dag fyrir þúsund árum eða svo. Framundan er bara lestur og aftur lestur hjá mér, reyndar keypti ég mér miða á Bologna - Juventus. Jafnvel að maður taki myndavélina með og fái Zlatan til að tjá sig um slúðrið um hann og
Tinnu.
Óðum styttist í heimkomu kappans, samlandar hans á Fróni mega fara að vara sig. Ég vil biðja einhvern um að hita upp gamla sætið mitt á Berginu, Daði væri ágætur í það svo sem, erum með svipað stóran rass, hann þó öllu heldur stærri. Heimkoman er 15 des, ef flugið mitt verður enn til staðar með Expressinu þ.e.a.s.
Over and out
|