þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
3.31.2005
Jæja gott fólk...
Þá er Kappinn aftur mættur til leiks. Ég setti inn nokkrar myndir bæði frá Gardavatnsævintýrinu mikla og Napoliförinni. Nenni ekki að skrifa um þetta núna, læt sögurnar fylgja seinna. Tékkið bara á þessum mjög svo merkilegu myndum á meðan....


L8R
|
3.24.2005
Varúð Napoli, hér kemur Kappinn...
Jebbah....ég er farinn til Napoli yfir páskana. Ætlum að kíkja á hvað er að gerast þarna niður frá, fólk er að deyja í gríð og erg - allt út af einhverri mafíustarfsemi skilst mér. Sjáum til hvort maður komist lifandi til baka.

over and out
|
3.18.2005
Vorið er þokkalega mikið komið hingað
Já góðir hálsar, það er sko heldurbetur vor í loftinu. Hitastigið hérna er yfir 20 gráður alla daga núna og alltaf sól. Kappinn nýtir því krafta sína til að læra utandyra undir tré og með vatnsflösku sér við hlið tli að svala þorstanum. Þetta er alveg frábært núna, var skítkalt þegar ég kom en á 2 vikum hefur hlýnað svo um munar og menn geta farið að fara út á stullum núna. Hið ljúfa líf, eða La dolce eins og sumir okkar þekkja það, hefur tekið völdin og mun halda þeim í einhvern tíma ef ég fæ einhverju um það ráðið. Á mið var dagur hins Heilaga Patreks og því var fagnað hérna eins og slíkum degi ber að fagna. Fólk var mætt út á Piazza Maggiore með gítara og var í stemmara þar í tröppunum syngjandi og dansandi fram eftir öllu, Kappinn sat bara og naut áhorfsins líkt og meirihluti áhorfenda gerði.
Í gær var síðan haldið á vit ævintýra Garda-vatns. Við leigðum saman nokkur bíl hérna yfir helgina og ákváðum að skella okkur eitthvert. Gardavatnið varð fyrir valinu. Við gengum um lítinn bæ sem er við það og heitir Sirmione. Þetta er mjög flottur bær og greilegt að fólk sem þarna býr á nóg af cashi, flottir bílar og hús. Síðan kostar ekki nema 30 euros að skella sér í sundlaug sem þarna er! Í dag var síðan meiningin að fara á ströndina snemma og liggja í sólinni. Eitthvað virðist hinsvegar sólin ætla að láta á sér standa í dag þannig að við sjáum til hvort við förum ekki bara eitthvert annað að taka svokallaðan power túrista á þetta


kveð í bili
|
3.15.2005
Vorið er komið
.....eða svo segja sérstakir veðurfræðingar hér á landi. Nú verður vetrarúlpunni góðu bara pakkað niður og sumarjakkar, stullur, strigaskór og svitabönd dregin fram ásamt mjög svo fögru bikíni sem Kappinn hyggst klæðast við tilvalið tækifæri!
|
3.10.2005
Nýjir tímar
Já kæru aðdáendur, Kappinn boðar nýja tíma. Nú hefur inflúensufaraldur dauðans gengið yfir Kappann hvað eftir annað í flóðbylgjum. Nú síðast hefur kappinn legið uppi í rúmi frá því á mánudag og er kominn með ansi mikla bakverki eftir það. Stríð var sagt pestinni á hendur aðfararnótt mánudagsins, þá sömu nótt og fann Kappinn hvernig óveðursskýin hrönnuðust yfir hann og veikin fór að taka sér bólfestu í honum. Ákvað hann því að bryðja töflur líkt og óður væri. Skemmst er frá því að segja að loksins lítur árangur erfiðsins, þ.e. pilluátsins, dagsins ljós og Kappinn reis úr rekkju nú áðan. Fórnarkostnaðurinn hefur samt sem áður verið mikill, t.a.m. var Slóveníuför frestað um ótiltekinn tíma. Mikið hagsmunamat fór fram áður en ákveðið var að offa þessa dýrðarför Kappans sem fært hefði honum mikla vegsemd og virðing. Hagsmunamatið var nokkuð einfalt, Kappinn mat líf sitt meira en förina og hugsaði hann sem svo að betra væri að skilja læknana hérna í Bologna frekar en að týna lífi í fyrrum stríðshrjáðu landi slóvena vegna tungumálaerfiðleika. Einhverjir gætu haldið því fram að dauði í bardaga tryggi mönnum sóma og greiða leið til Valhallar en Kappinn minnir hina sömu á að hér í landi er iðkuð Kristintrú og það telst vera dyggð á Ítalíu að gefast upp og ekki fara neitt heldur bara beint til mömmu. Í samræmi við þetta ákvað Kappinn að ráðfærast við móður sína og hún sagði honum einfaldlega að ekki kæmi í mál að hann færi í slíka för. Þar með var það ráðið.

Mission dagsins í dag er að fara að kaupa skólabækur. Ef til vill er mesta snilld vorannarinnar að ég er ekki í tímum á fim og fös þannig að þetta er alveg ideal fyrir ferðalög. LÍN bombar mann endalaust með ótakmörkuðum framlögum þannig að væntanlega verður eitthvað meira um ferðalög utan borgarmúranna þessa önnina.

Kveð að sinni,
Kappinn
|
3.05.2005
Kappinn kveður
Góðir Íslendingar nær og fjær.

Kappinn mun yfirgefa Ísland 6. dag marsmánaðar. Dvöl Kappans að þessu sinni var afar ánægjuleg en honum þykir nú tími til kominn að halda á vit ævintýranna á ný. Blómar og kransar eru því vinsamlegast afþakkaðir.

Kappinn kveður að sinni,

over and out
|
3.03.2005
this is an audio post - click to play
| Uppfærsla
Var að skella myndum inn á frakklands-linkinn hér til hliðar af Rómarferð Kappans, væntanlega hægra megin á síðunni...(taki þetta til sín sem eiga). Þetta var mission dagsins í dag.
|