þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
5.23.2007
alive
jájá, maður er alveg á lífi. Bara ekkert að gerast eiginlega. Fékk mér samt nýjan bíl, ætli að það sé ekki umþaðbil það merkilegasta hjá mér þessa dagana. Mjög svalt sænskættað landbúnaðartæki þar á ferð. Og að sjálfsögðu svört græja. Fyrir áhugasama þá er líklegt að mynd verði tekin af gripnum í Hellutorfærunni á næstunni. Annars átti að skella sér til Akureyrar næstu helgi á græjunni. Samt spurning með veður og færð, sjáum til.

Golfið er merkilegt sport. Mér tókst að beygla járnkylfu á range-inu í gær, mjög töff móment þar á ferð. Bombaði í svart drasl á mottunni sem á að halda tí-unum. Tókst ekki betur en svo en að Adams gaf undan og svignaði undan ógnarkröftum Kappans. Hefði verið högg aldarinnar pottþétt.

Áfram Liverpool!
|
5.07.2007
Pabbinn..
..er ágætasta skemmtun. Fór á einleikinn sl. föstudag. Þetta er mjög fyndið leikrit. Mér fannst það samt virka betur sem getnaðarvörn. Það var líka virkilega fyndið þegar leikarinn, Bjarni Haukur held ég að hann heiti, gleymdi sér eitt andartak og fór að hlæja að einum áhorfandanum þar sem sá hafði hlegið þvílíkum hrossahlátri mun hærra en allir aðrir.

Annars hefur Kappinn haft spurnir af miðum á Josh Groban tónleikana sem eru 16. maí n.k. Áhugasamir hafi samband við Kappann með hugboðum eða símleiðis.
|