Kappinn
Svekkelski
Jæja, var að koma frá einum prófessornum hérna. Hún var mín eina von um að fá að taka próf í des. Var mín eina von, mikið rétt. Hún er það eigi lengur. Ég verð því bara að sætta mig við að læra í jólafríinu, meiriháttar fjör það. Það eina góða við að vera erasmusnemandi og taka próf í jan - feb - mars er að það býst greinilega enginn við neinu af manni hérna. T.d. þessi prófessor sem ég fór til í morgun, það kom henni mjög á óvart að ég hafði stundað tímana hennar því að yfirleitt gerir það enginn sagði hún ( veit ekki hvort hún átti við engan yfirhöfuð eða bara erasmusnema ) og svona til að hinta að ég þyrfti ekkert að vera að mæta þá tjáði hún mér að síðustu tímarnir hennar, í dag og á morgun, væru efni sem ekki væru til prófs fyrir mig! Er hægt að vera augljósari án þess að segja hlutina beint út, henni er alveg skítsama og nennir ekkert að vera að'essu rugli.
Verkföll eru annað sem mig langar soldið að tjá mig um. Hérna á Ítalíu er þetta nánast hversdagslegt að fólk fari í verkfall. Í dag er t.a.m. verkfall háskólakennara og annars starfsliðs háskólans. Samt sem áður eru einhverjir kennarar sem eru ekki í verkfalli og einhverjir starfsmenn sem eru ekki heldur í verkfalli þannig að maður veit ekkert hvort það eru tímar eða ekki, þetta er svo ógeðslega týpístk ítalskt eitthvað - allt í rugli og kaos. Ég hef því ákveðið að fara í mótmælaverkfall og fara bara ekkert í tíma í dag. Síðan á morgun er verkfall hjá strætó, rútum og lestum. Í síðustu viku voru læknar í verkfalli og dómarar líka. Berlusconi vinur minn er soldið mikið að gera í brækurnar held ég, hversu slæmt þarf ástandið að vera til að dómarar fari í verkfall?
Gærdagurinn fór allur í að læra ítalska réttarsögu, prófið sem ég var svo þokkalega að fara að massa í des, búinn að peppa mig upp í að fara í dauðalestur hérna. Fann m.a.s. lag sem hægt var að nauðga endalaust - aftur og tilbaka - svona lag sem maður tekur ekki lengur eftir að sé í gangi á meðan maður les. Peppunin dó heldur betur eftir heimsóknina í morgun, stemmari johnson r.i.p. Ætli maður fari ekki bara að hlaupa og lyfta alla daga núna til að reyna að komast í sama form og Vic ( eiiiiiinmitt...... )
Á morgun er svo áætlað að halda íslenskt matarboð hérna í kommúninni minni. Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að elda hangikjöt og kartöflu-mysing eða hvað þetta nú heitir, ekki kartöfulumús heldur hitt.... Síðan verður nottla boðið upp á týpískan íslenskan drykk að hætti hússins eftir á, brennivín. Spennandi að sjá hvernig það rennur oní liðið.
Over and out
|
Ég viðurkenni það alveg, þetta hafa verið frekar mikið slakar vikur hjá mér hérna á þessu blessaða bloggi undanfarið. Til stendur að bæta úr því og er þessi færsla m.a. liður í því. Frétt vikunnar er án efa að ég hef aldrei á ævinni borðað jafnmikið og vel og síðastliðna viku. Helst ber að þakka bæði föður mínu elskulega og móður minni blessaðri fyrir það. Þau voru hérna í 8 daga og þetta var sko alvöru átta daga veisla, alltaf út að borða, gott föruneyti, menningarlegir viðburðir, heimsókn til ömmu gömlu á elliheimilið, fórum upp til Cortina, smá shopping svona eins og vera ber ofl.ofl. Fyrir mitt leyti verð ég að segja að það sem stóð upp úr var ferðin til ömmu og Cortina. Í Cortina, fyrir þá sem ekki vita, er hægt að skíða á fullu og þangað fara svona movie-stars vip lið og ég auðvitað.
Hérna er hægt að sjá nokkrar myndir þaðan. Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að skoða
þetta til að fræðast um sögu Cortina ( þökk sé viktor.tk þá hef ég ákveðið að taka upp svona menningarlegt efni til að fólk geti fræðst um bæina sem ég heimsæki ). Þar fórum við á veitingastað sem heitir Staulin og er úti í rassaboru þarna uppfrá, mjög geggjað góður staður og flottur. Örugglega ekkert voðalega svalt að geta bara rennt sér úr einhverri brekkunni þarna og beint inn í geggjaða grillveislu og svo aftur út og rennt sér niður á hótel!! Fann því miður engar myndir af staðnum þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Amma gamla býr á svona týpusku elliheimili. Þetta er alveg mjög fínt hjá henni, allur aðbúnaður til fyrirmyndar - m.a.s. hægt að henda gömlu í klippingu þarna á neðstu hæðinni. Þetta er samt soldið nöturlegt, sérstaklega eftir að ég fór upp á aðra hæðina þar sem þeir biluðustu eru "geymdir". Þetta fólk er algerlega komið á endastöð og er eiginlega bara að bíða eftir að komast út úr þessum heimi og í þann næsta, án þess þó örugglega að vita af því. Amma lét nokkur tár falla þegar komið var að brottför og það var soldið leiðinlegt. Samt gaman að tékka á kellu og rölta um með henni og restina af föruneytinu. Eitt sem mér finnst alveg merkilegt er hvað hún man allt í einu marga hluti, t.a.m. mundi hún eftir því að ég væri í lögfræði og að Gunnsan væri knattspyrnukona með meiru.
Ég verð nú að viðurkenna að ég er orðinn helvíti góður ökumaður hérna, kom sjálfum mér m.a.s. nokkuð mikið á óvart, gat brunað um le autostrade og þaðan beint inn til Bologna og fundið allt saman í fyrsta (næstum því...). Fyrir fáfróða þá eru autastrade svona hraðbrautarfyrirbæri, 3 - 4 akreinar í aðra átt og ekki er leyfilegt að aka undir 100 km hraða c.a. og ekki má fara hraðar en 130 ( in theory því samt bruna allir benzarnir og bimmarnir og audiarnir og ferrariarnir og porchearnir á ekki minna en svona u.þ.b. 180 km hraða skv. mjög nákvæmum hraðamælingum mínum undanfarna daga á hraðbrautinni ).
Mamma var mjög dugleg við að versla hérna, eða allavega að kíkja í búðir. Eiginlega kíkti hún meira en að versla, ég og pa vorum alveg búnir. Hún reyndar líka en það skiptir víst ekki máli þegar um innkaup er að ræða. Ég talaði við krakkana hérna heima í morgun þegar ég kom heim og þá kom í ljós að Elena, stelpan sem fer aldrei á fætur fyrr en í eftirmiðdaginn um kl.2, fær rosalegt adrenalínkikk af því að fara að kaupa sér hluti!!! Ég segi nú bara fyrir mitt leyti að eigi hefi eg slíkt kikk við innkaup fundið. Konur þarna úti sem lesið þetta vinsamlegast kommentið á þetta og hvort þið fáið slíkt kikk.
Fylgdi svo "gamla" settinu til Forlí í morgun og tók svo lestina til baka heim. Nú tekur bara við meiriháttar djamm með ítalska réttarsögu í annarri og eitthvað sem gæti verið samanburðar-stjórnskipunarrétt, í hinni. Fer svo heim eftir ekki nema c.a. 18 daga eða svo þannig að þetta verður bara eintómt stuð þangað til. Maður á nú svosem alveg skilið soldla refsingu núna þessa síðustu dagana því að ekki hefur maður nú lagt sig mikið fram við lestur hingað til.
Fyrir áhangendur íslenskrar kvennaknattspyrnu, þ.e. þeirra sem hafa sérstakan áhuga á því íslenska kvenfólki sem spilar í USA, þ.e. þeir sem halda sérstaklega með
Notre Dame háskólakvennaliðinu í svonefndu soccer og halda með
Gunnsunni þá skal á það bent að þær eru komnar í undanúrslit. Þetta er enginn smá árangur verð ég að segja, þetta eru ekki nema svona 1000 lið í landinu c.a. ( alltaf skv. mjög nákvæmum talningum og mælinugum mínum ). Bent skal m.a. á þennan lista
hérna. ( ég hef s.s. nákvæmlega barasta ekkert að gera núna ...)
ok, læt þetta duga í bili og segi bara over and out
|
Áframhaldandi heimsóknir
Foreldrar kappans eru að koma í dag. Því verður væntanlega ekki mikið um uppfærslur hérna næstu dagana. Tékkið samt á kappanum svona við og við...
|
Klukkan ekki orðin 7 og maður bara kominn á fætur. Meiriháttar alveg hreint... Einhver helvítis ruslabíll var fyrir utan gluggann hjá mér í kringum hálf 7 og festi greinilega ruslatunnuna inni í sér eða eitthvað því að þetta voru ekkert eðlileg læti og ýkt lengi. Jæja, þetta er kannski bara í fína lagi - maður drullast allavega í tíma kl.8.
|
Sæminn farinn
Komiði sæl.
Síðust dagar hafa heldur betur verið viðburðarríkir. Ekki verður annað sagt en að heimsókn Fatlafólsins frá Keflavík hafa aldeilis heppnast vel. Dvöl hans hófst síðastliðinn fimmtudag og endaði í dag, þriðjudag. Á laugardaginn fórum við út að borða á stað þar sem enginn matseðill er til. Maður er bara spurður hvort maður vilji forrétt, fyrsta aðalrétt, seinni aðalrétt, eftirrétti, osta. Við nottla sögðum bara já við öllu. ÞVÍLÍKT magn sem maður fær þarna, þetta var ótrúlegt. Bara eftir forréttinn vorum við pakkaðir en áttuðum okkur á að allt hitt væri enn eftir. Þarna fær maður sko ekkert bara einhvern einn forrétt, neinei góðan daginn...það er komið með hvern forréttinn á fætur öðrum og sama gildir fyrir alla hina réttina. Ég er ekki að djóka þegar ég fullyrði að ég hafi borðað svona u.þ.b. 2 kg af mat þetta kvöld. Við vorum þarna í c.a. 5 klst að borða ásamt fleira fólki þannig að þetta ekki svona rómantísk stemmning hjá okkur tveimur. Á sunnudeginum ákváðum við að skella okkur til Flórens. Þetta var ein mesta snilldarferð sem ég hef farið í. Við tókum lestina og vorum komnir c.a. 1 klst síðar á áfangastað. Þegar við komum út af lestarstöðinn blasti við okkur risastór 2 hæða túristastrætó og við ákváðum bara að taka german-túrist pakkann á þetta. Fórum og vorum í c.a. 1 og hálfa klst að skoða allt það frægasta og flottasta í Flórens. Þetta er alveg geggjaðslega flott borg. Þvílík menning þarna. Þegar við keyrðum fram hjá Duomo þá reikaði hugurinn nú allaleið til Íslands, var hugsað til Hallgrímskrikju og Leifs Eiríkssonar á Skólavörðuholtinu, svona svipuð stemmning yfir kúltúrnum, rrææææææææt! Sama kvöld fórum við út að borða og héldum áfram túrstastemmningunni, fengum okkur túrist menjú nr.2. Þetta var svosem fínt, lasagnað var samt hitað upp í örbylgjunni, ekki nógu spes. Síðan hittum við hóp af íslendingum sem eru í námi þarna og fórum út með þeim. Hápunktur kvöldsins....augnablik....ef til vill er ekki rétt að tala um hápunkt þar sem fólk gæti haldið að það væri mesta skemmtunin, því væri réttara að tala um eftirminnilegast....
Eftirminnilegast var þegar við ákváðum að fara inn á rosalega flott diskótek. Þetta var svona brasilískt diskótek og allt brasilíkst í gangi þar. Mjög kúl sem sagt. Við komuna inn, þ.e. eftir að hafa borgað 15 euros fyrir að komast inn, þá tók við "kona". Þessi "kona" var nokkuð stór af konu að vera og talaði við frekar djúpri röddu en ég meina hey, kemur fyrir. Ok, áfram með okkur, ekkert probblem að hitta eitt stk frík, inn á dansgólf.....MENNINGARSJOKK DAUÐANS.....!!!!!!! Án gríns, mér hefur sjaldan liðið jafnfáránlega og þarna inni. Þetta voru meira og minna allt annaðhvort she-male eða he-she eða hvað þetta heitir á enskunni. Fyrir eldra fólk sem skoðar þessa síðu þá merkir það konu-karl eða karla-kona ( Löggilt skjalaþýðing fengin frá Eiðistorginu ;) ). Við duttum sem sagt inn á kynskiptingakvöld. Þessar kynskiptingar voru pottþétt ekki allar yfirstaðnar algerlega því stundum mátti sjá fjallmyndarlegan kven-mann með þrýstin barm í stíl við nútímakröfur samfélagsins en svo sá maður móta fyrir skeggrót og bicepum og adamsepli og bara ekkkkkkkkkkkkkkiiiiii nógu kúl!!! Þetta var soldið fyndið fyrst en eftir því sem maður fór að líta meira í kringum sig og spá í þetta þá fór þetta að vera yfirþyrmandi og óþægilegt þannig að við drifum okkur út og heim að sofa.
Gærdagurinn var síðan bara mjög rólegur þar sem Fatli þurfti að fara frekar snemma og fljúga heim. Fengum sæti fyrir hann í rútunni þar sem fatlað fólk getur setið þar sem hann fellur undir þann flokk
Fyrir áhugasama þá tilkynnist hér með að Kappinn lendir á Keflavíkurflugvelli kl. 22:40 að staðartíma, miðvikudaginn 15.desember. Brottför frá Keflavík er síðan því miður áætluð föstudaginn 7. janúar 2005 kl.14:50 að staðartíma.
Nóg í bili,
over and out
|
Kappafréttir 10.11.2004
Í fréttum er þetta helst:
Serðir Monster hefur tilkynnt komu sína til Bologna. Yfirvöld hafa gripið til viðeigandi ráðstafana og verið er að hefja undirbúning. Koma Monstersins, aka Sæmdarmunda, er áætluð annaðkvöld klukkan c.a. 23 að staðartíma. Kappinn hefur gefið út eftirfarandi yfirlýsingu vegna þessa: "
Uhhh, jújú, þetta er svosem alveg ágætt að fá hann hingað. Það er samt ekki nægt pláss fyrir okkur báða í þessari borg...ég hefi talað við félaga mína á Sikiley, sem skulda mér nokkra greiða, og þeir sögðust alveg hafa þetta under contról. Ég kvíði eigi komu hans. Komi þeir sem koma vilja og fari þeir sem fara vilja ".
Fréttastofa kappans hefur þó áreiðanlegar heimildir fyrir því að Kappinn sé mjög ánægður og hlakki nokkuð til.
Fréttastofa kappans 2004
|
Sælt veri fólkið. Ég var að átta mig á að það er liðin heil vika síðan ég reit hér eitthvað. Nokkur atvik hafa verið þess valdandi, helst ber að nefna megadeath dauðavírus sem herjað hefur á tölvuna mína hérna. Var að skoða mbl um daginn og þá allt í einu poppar upp gluggi sem segir að það sé meiriháttar fatal system error og að það þurfi heldurbetur að shutta down all programs before eitthvað gerist því annars... Allavega, þá kom upp svona count-down mælir og slökkti á öllu saman eftir nokkrar sekúndur. Ég var nú ekki allskostar sáttur við þetta og kveikt aftur á tölvunni. Þá startaði hún sér upp í secure mode og ekkert virkar í því þannig að ég er smá einangraður þessa dagana, merkilegt hvað maður er orðinn háður veraldarvefnum. Þetta er eiginlega svona eins og að týna símanum sínum, maður verður algerlega heftur.
Það er annars helst að frétta af mér héðan að ég fór í ferð til Siena og Cortona um helgina ásamt heilum helling af Erasmusum. Við vorum u.þ.b. 26 strákar og 100 stúlkukindur. Spánverjar einokuðu aðra rútuna, en þeir voru yfir helmingur af liðnu, og rest og rusl sett í hina rútuna. Þetta var stemmningsför, sérstaklega í Cortona. Þar gisti ég í nunnuklaustri þar sem gistihúsið sem hafði verið pantað var ekki nógu stórt. Ég er bara feginn því að hafa verið í þessu klaustri með nunnunum mínum, það var víst ekkert sofið í gistihúsinu vegna þess að spánverjarnir ákváðu að gerast rosasniðugir og kveikja á eldvarnarkerfinu. Það tók síðan alla nóttina að þrífa gistiheimilið, á meðan svaf maður bara rólegur með krist á veggnum fyrir framan sig. Um morguninn átti ég síðan ágætist spjall við eina nunnuna, endaði með því að hún ætlaði að skipuleggja hópferð til Íslands! Maggi, það er orðin hefð fyrir því að þú hýsir 2 eða 3 ekki satt?! Því miður verða engar myndir nærri því strax settar hérna inn þar sem ég klikkaði á algeru bazic atriði, myndavélin varð eftir heima! Það var glatað að hafa gleymt henni en ég mundi þó eftir hreinum nærbuxum og kodda.
Skólinn gengur bara alltaf betur og betur, maður er að læra fullt af nýjum lögfræðiorðum hérna þannig að ég ætti alveg að vera ágætlega settur, allavega miðað við þá erasmusa sem skilja ekkert og þeir eru nokkuð margir hérna get ég sagt með góðri samvisku. Það er líka soldið þess vegna sem maður hefur verið frekar mikið rólegur í lestrinum. En það stendur allt til bóta.
Þessi helgi verður fremur róleg, engin ferðalög, bara Bologna í rólegheitunum. Svo er ég farinn að læra af soldlum krafti núna enda ekki búinn að vera nógu öflugur í því. Var því miður að komast að því að líklegast get ég bara tekið 1 próf í des en restin verður að vera í jan og feb. Það lítur út fyrir að ég verði því stutt á Fróni þessi jól, verð líklegast að vera kominn til baka í kringum 7 jan þar sem eitt prófið er strax þann 9. Við sjáum til hvernig þetta verður. Ætli maður verði ekki að tala við yfirvöldin, þ.e. mömmu og Gunnu, um þetta og sjá hvað þær segja.
Þetta verður að duga í bili, ætla að posta þetta áður en ég fæ aftur viðvörun um major problem sem john boblem ræður ekkert við
over and our
|
Frakkland 2004
Þetta var bara alger snilld, það verður bara að segjast eins og er. Þar sem þetta var alger, meiriháttar geggjuð snilld hefur kappinn ákveðið að sleppa 3.ju persónu sinni í dag og skrifa bara í 1.stu persónu stíl.
Við lögðum af stað í hádeginu s.l. föstudag. Fórum í þessum bíl
hérna. Eins og sjá má er þetta enginn Ferrari F550, dökkblár með ljósu leðri, en hann kom okkur samt sem áður á leiðarenda. Ferðalagið tók nú ekki nema c.a. 9 klst þannig að segja má að við höfum verið komin á áfangastað á no-time. Bærinn sem við keyrðum til heitir Vidauban og er c.a. á stærð við Seltjarnarnesið. Við komuna var afmæli Daniele fagnað með viðeigandi hætti og ekki spillti fyrir að við vorum loks komin á
leiðarenda. Á leiðinni þangað keyrir maður yfir Monte Carlo og það er geggjað að keyra þarna yfir. Hraðbrautin liggur í u.þ.b. 400 metra hæð yfir Ríkidæminu og fyrir neðan mann er ekkert!!! Ég var bókstaflega að skíta í brækurnar þegar við fórum þarna yfir en náði nú samt að halda í mér.
Þegar við loksins vorum komin til Vidauban þá fengum við þær fréttir að við myndum ekki gista í húsi frönsku stelpunnar, sem var hérna hjá okkur fyrir nokkrum vikum síðan, heldur yrðum við að gista í sveita"kofanum" þeirra. Skemmst er frá því að segja að "kofinn" var eins og flott einbýlishús úti í sveitinni þar sem þau eru m.a.s. með vínekru í bakgarðinum og geggjað flottan golfvöll! Ég get svo svarið það að ég hefði miklu frekar viljað sofa á gólfinu þarna heldur en að vera í þessari holu sem ég fékk hérna fyrsta mánuðinn.
Fyrsta daginn þá ákváðum við að bruna niður til Marseilles og skoða okkur um þar og fara þaðan til Aix en Provence. Marseilles er risaborg þar sem slær saman 2 eða fleiri menningarheimum, í bókstaflegri merkingu. Við fórum inn í arabahverfið og segja má að sjón sé sögu ríkari. Við fundum m.a. þennan stað
hérna. Síðan fengum við okkur smá átu á þessum stað
hérna...
Eftir nokkra klst í Marseilles var haldið til Aix en Provance sem er mun minni borg en mér fannst hún samt sem áður mun meira heillandi. Þetta var svona smábæjarstemmning eiginlega, litlar göngugötur með fullt af verslunum og kaffihúsum. Náði þessari mynd
hérna á röltinu. Síðan héldum við heim á leið og fengum okkur kvöldmat sem ég eldaði, pasta með gúmmelaði, allskonar grænmeti og svona fleira með. Þegar kom að eftirréttinum færðum við okkur út á veröndina í höllinni sem við bjuggum í og fengum okkur osta. Jújú gott fólk, ég er farinn að verða mjög mikill menningarviti, farinn að borða osta sem fyrir þessa ferð var nánast óhugsandi - nema hvað Gouda 11% slapp fyrir horn.
Á sunnudeginum héldum við af stað um ströndina, Coté Azure, eða eitthvað í þá áttina. Við fórum m.a. til Cannes þar sem við sáum voðalega flottan skemmtistað, allar stjörnurnar sem fara á kvikmyndahátíðina fara víst þangað. Við létum okkar nú ekki eftir liggja og löbbuðum rauða dregilinn en ekki meir þar sem kostaði að fara inn. Þaðan héldum við meðfram ströndinni og keyrðum um alla smábæina sem eru þarna, þetta er svo mikil snilld þarna að það er ótrúlegt. Við tókum með okkur mjög svo franska baguette og mjög svo franska osta og skinku og fengum okkur að borða á kletti við ströndina, það var hengiflug þar niður beint í sjóinn þannig að þetta var geggjað flott. Allir klettarnir þarna sem við vorum eru rauðir og sjórinn er alveg himinnblár þannig að þetta var frekar mikið flott. Kom því miður ekki inn myndum á myndasíðuna af þessu núna en til stendur að bæta úr því. Síðan slúttuðum við deginum með vinafólki frönsku píunnar og fórum á matsölustað í St. Raphael, sem er einn af þessum bæjum við ströndina. Þar fékk ég mér mjög svo góða steik með frönnum og tilheyrandi eftirrétti og fleiru góðmeti. Við komum svo til baka í gær, heimferðin tók nú ekki nema u.þ.b. 8 tíma. Að sjálfsögðu keyptum við osta áður en við fórum heim. Þið getið nú rétt ímyndað ykkur hvernig við önguðum af mygluosti þegar við loksins komum heim! En mikið djöfull eru þessir ostar góðir!! Var að slátra einum í andlitið á mér rétt í þessu, ahhhhh..... Ég setti inn nýjan link hérna til hliðar þar sem þið getið kíkt á myndir frá Frakklandsförinni. Það verða fleiri settar inn á næstunni samt sem áður.
Í morgun komst svo lífið í sitt rétt horf, tókst að fara í alla tíma í dag sem voru m.a.s. allir mjög áhugaverðir. Í fyrsta sinn sem það gerist. Sérstaklega þar sem ítölsk réttarsaga er ekkert voðalega skemmtileg, kennarinn er soldið mis, fram og aftur í tímaröð og maður veit aldrei hvar hún er. Í kvöld ætla ég svo að fara að horfa á baráttuna um valdamesta embætti heims í beinni, þetta verður því miður örugglega döbbað eins og allt annað hérna en maður heldur í vonina. Kannski maður heyri allt á ensku núna þar sem John Hopkins University er að halda þetta í kvöld og amerískir prófessorar verða á svæðinu.
Þar sem ég hef nú slegið innsláttarmet mitt á þessa síðu læt ég þetta nægja í bili og segi því bara
over and out
|