þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
9.30.2004
Þreytan farin
Þreyta hefur einkennt síðustu dagana. Ekki veit kappinn hvort það var vegna eilífs braks í rúmi kappans eða lítils svefns og stress. Allavega þá er kappinn búinn að vinna bug á þreytunni. Kappinn lagði leið sína í Coop súpermarkað hér í grenndinni og verslaði í matinn fyrir heilar 50 evrur. 5 innkaupapokar takk fyrir. Ætti að eiga mat út mánuðinn allavega, sérstaklega þar sem stutt er í mánaðarmótin.
Í morgun hélt kappinn snemma af stað í tíma, gjaldþrotskiptarétt. Kappinn náði mest öllu því sem fram fór en málið vandast aðeins þegar kemur að því skrifa og halda athyglinni í leiðinni því að það eru svo foooookkkkkings erfið orð í gangi þarna maður! Kappinn lærði u.þ.b. 15 ný orð í einni kennslustund í dag, eða svona næstum því í kennslustundinni. Fór svo heim og fletti upp í orðabók, eða ætlar allavega að gera það.
Annars er mest lítið að frétta af mér núna, skólinn kominn á fullt, maður er að pikka út kúrsa sem eru svona frekar auðveldari heldur en hitt og því lítið að gerast í social-life-inu núna. Ef einhver vill þá er laust rúm hjá mér frá og með föstudagskvöldinu og í eina viku þar sem Lorenzo er að fara til Spánar ásamt einhverjum vinum sínum.

over and out
|
9.28.2004
Heimsókn
Það var gestagangur hjá kappanum þessa helgina. MeggiMegg kom yfir ásamt öllum tilheyrandi fylgihlutum, eins og t.d. eitt stk. kven. Þau fengu herbergi stelpunnar sem aldrei er hérna og sefur bara þegar hún er hér. Helvíti magnað, maður kemur hingað, bóner fide eins og maðurinn sagði um árið, og fær algera skítakompu. Meggi mætir á svæðið með 5 klst. fyrirvara og fær svítu. Moreways... Þetta var annars alveg fínt. Magnúsinn beitti fyrir sig tungumáli ástarinnar, þ.e. norskunni, óspart hérna. Konan stóð honum við hlið, eins og sannri spúsu sæmir, og brosti. Reyndi að koma einhverjum orðum frá sér en það skildi hana enginn þannig að menn sögðu bara "pronto" og allir voru kátir.

Skólinn er byrjaður hjá kappanum. Þetta er rífandi stemmari bara. Kappinn er skráður í allt of margar einingar þannig að alla mán, þri og mið byrjar hann í skólanum kl. 9 og er til 7 um kvöldið. Allt of langur tími þannig að eitthvað verður að skoða þessar einingar og tíma aðeins betur. Kappanum fannst þetta rosalega góð hugmynd fyrst, bara að taka þetta með soldlu trompi og læra eitthvað af viti loksins...neinei, ekki lengi að skipta um skoðun. Betra að fækka kúrsum og koma allavega með einhverjar einingar í hús frekar en að taka of mikið og skila engu inn.

Over and out
|
9.25.2004
Mættur aftur
Gott fólk, engar áhyggjur. Kappinn er mættur til starfa aftur. Jújú, hann fór í vinnuna í gærkvöldi ásamt sambýlingum sínum hérna. Kíkt var út í einhvern klúbb sem var úti í rassgati og kostaði frekar mikið allt þarna. Kappinn ákvað því að ganga bara heim eftir veisluna en ekki að bíða eftir strætó sem byrjaði að ganga aftur kl. 5 en þegar sú ákvörðun var tekin var klukkan hálf 5. Kappinn var kominn heim um kl.7. Nough said. Meiriháttar. Labbaði m.a. yfir engi með maísstöngultrjám, eða eitthvað þannig og lagðist þar niður til hvílu. Bara ekkert hlegið að kappanum þegar hann loksins komst til síns heima. Annars hefur kappinn verið í rólegheitum hjá frændfólki sínu hérna. Kíkti til ömmu gömlu og hún var mjög hress bara. Fyrir utan að vera hálf blind og heyrnarlaus þá var hún alveg með fulle fem og virkaði mjög venjuleg amma. Það merkilegasta sem gerðist hjá kappanum þessa síðustu daga var e.t.v. 3 klst. kyrrstaða á hraðbraut dauðans. Bíll Marco, sem er frændi kappans, drapst á miðri hraðbraut. Síðan kom einhver gaur á svona togbíl/neyðaraðstoð og hjálpaði okkur félögunum, gaf bílnum start sem dugði svona c.a. 700 metra. Það var samt nóg til að komast af hraðbrautinni og inn á einhverja umferðareyju þar sem bíllinn endanlega drapst með brunalykt og öllu tilheyrandi. Mjög ánægjuleg lífsreynsla sem fer í reynslubankann.
Maxterinn er að koma núna á eftir að kíkja á kappann. Hann var víst staddur ásamt sinni heittelskuðu í Slóveníu. Hótelið sem þau gistu á datt víst í sundur, eða eitthvað þannig, þar sem stórt tré féll á það. Því lá næsta við að kíkja yfir adríahafið og beint til kappans! (en ekki hvað?)
Í dag stendur til að fara á Bologna - Roma með erasmusum. Kappinn þarf að redda the maxemillian miða og þarf því að drífa í því núna.

over and out
|
9.20.2004
MTV dagurinn
Sælir unnendur góðir. Í gær var haldinn MTV festival dagur hér í Bologna. Kappinn hélt auðvitað á vit rokk og ról stjarna ítalíu. Dagurinn hófst reyndar á því að kappinn bauð fólki yfir í hádegismat og heppnaðist það alveg hreint ágætlega. Síðan var haldið í göngutúr með hund og loks farið á festivalið. Hátíðin stóð frá fjórtánhundruð til tuttuguogfjögurhundruð. Þetta var svakalega gaman og í fyrsta sinn sem kappinn sér og heyrir í ítölskum rokk og ról böndum. Síðan var þarna líka einn ítalskur rappari, 50 cent á ekki séns í gæjann. Þetta var alger snillingur. Bologna er sögð vera rauð borg og er það vegna þess að hér í borg hefur vinstristefna stjórnmálanna lengi verið höfð í hávegum. Flest allir rokkararnir og rappararnir og kynnarnir og allir þeir sem stigu fæti á sviðið í gær voru með eitthvað pólitískt í pokahorninu. Þetta minnti einna helst á áróðursherferð gegn Mr. Big B (Berlusconi fyrir vanvita). Hátíðin var í beinni útsendingu á MTV stöðinni hér í landi og því þurfti nottla að gera auglýsingahlé öðru hverju og þar gat maður séð, ef viðkomandi var ekki ofurölvi eða útúrreyktur þ.e.a.s., að skoðarnir sem kæmu fram í útsendingunni væru ekki endilega skoðanir stöðvarinnar! neinei, einmitt ekki... Kappinn fylgdist með fólki reykja frá sér allt vit eins og t.d. þessi gaur hérna Example
Þau voru víst búinn að fá sér nokkrar í röð þannig að þau bara ákváðu að fá sér smá lúr. Allavega, þetta var alger snilldarkonsert sem settur var í gang þarna. Síðan ákváðu aðstandendur hátíðarinnar að enda þetta allt saman til heiðurs MaggaMegg. Jújú, Black eyed pies mættu á svæðið og tóku slagara eins og Shut up og Let´s get retarded in here. Eitthvað rugluðust kanarnir samt því að þeir böbbluðu endalaust á aumingjalegri spænsku eins og " manos en arriba!" og svo " Mis hermanos!" sem var reyndar mjög fyndið komment þar sem engir "brothas" voru á svæðinu nema þau uppi á sviði...allavega... Kappinn smellti nokkrum myndum af öllum herlegheitunum og er hægt að nálgast þær undir myndalinknum. Nóg í bili,

over and out
|
9.17.2004

Kappanum datt í hug að sumir hefðu áhuga að sjá þennan hnoðra... Posted by Hello
|
9.16.2004
Nýtt herbergi
ég trúi þessu heitasta helvíti ekki! Maður er búinn að sitja hérna og drulla einhverju niður og svo bara hverfur þetta allt!! meira draslið. jæja, taka 2.

Í gær fékk kappinn send til sín húsgögnin sem hann keypti í hinni virtu verslun IKEA. Tveir indverjar/pakistanar hlupu með þetta upp í íbúð kappans, létu hann kvitta á einhvern pappír og hlupu síðan aftur út til næsta kúnna. Við tóku samsetningarleikar kappans 2004 og stóðu leikar hátt í á fjórðu klukkustund. Árangur erfiðisins má sjá á myndasíðunni hér til hliðar, kappinn bætti við nýjum myndum í Holu-albúmið.

Á þriðjudaginn var haldinn " kokteill " fyrir erlenda skiptinema af hálfu rektors Bologna-háskóla. Þetta var ekki kokteill í hefðbundnum skilningi laganema því að áfengið var af mjög skornum skammti en maturinn var bara þeim mun betri. Þar sem rektorinn er voða sniðugur kall og allir hlógu að bröndurunum hans þá ákvað hann að hafa nafnakall, þ.e. hann kallaði upp nafn allra landa sem áttu skiptinema þarna og nemendur frá viðkomandi landi áttu að lyfta upp hendi.
" Argentina! " > 10 hendur, " Germania! " > 46 hendur, " Islanda! " > kappinn lyfti einn upp hendi.

Í gærkveldi var síðan kíkt út á lífið. Flestar samræður kvöldsins hófust á eftirfarandi máta ( tekið skal fram að ensk þýðing verður í hávegum höfð þar sem margir lesenda kappans kunna ekki annað en að segja pasta og pizza á ítölsku ): " Hello, you´re the guy from Iceland, aren´t you?" Gott fólk, þessi setning markar tímamót í lífi kappans. Allt hans líf hefur hann verið alinn upp í þeirri trú að hann væri ítali, hérna er hann þekktur sem íslendingurinn! Kappinn vill koma á framfæri vonbrigðum sínum með þetta en þess ber þó að geta að það væri e.t.v. soldið mis að vera þekkur sem ítalinn hér í borg þar sem það eru nú um 250.þús slíkir fyrir. Svo eru víkingar líka soldið kúl.
Áfram héldu samræðurnar og það næsta sem fólk sagði undantekningarlaust eftir að kappinn hafði svarað játandi var: " Reykjavík! " Jújú, mikið rétt, Reykjavík, haha... " Bjooook!" Jújú, frábært hjá þér kallinn minn, meiriháttar. Kappinn var nú bara farinn að bíða eftir fleiri svona kommentum á borð við " Gæsir (geysir sko..) " og fleira í þeim dúr, sem reyndar kom svo ekki.
Gunnsan átti afmæli í gær og hringdi kappinn því í hana af því tilefni. Var hún mjög ánægð með. Taldi hún kappann hafa gleymt afmælinu þar sem hann hringdi svo seint en það var með vilja gert og erfitt að gleyma slíkum merkisdegi sem 15 sept. er. Jæja, nú hefur kappinn lokið málræpu sinni í bili og segir því

over and out
|
9.14.2004
uhummm
jæja, þessi lagfæring tók kappann ekki nema u.þ.b. 1 klukkustund. Þetta er næstum eins og það var. Ef einhver saknar einhverra linka þá endilega látið kappann vita....
| AAARRRGGGGG
Djöfulsins maður, var eitthvað að fikta í þessu drasli og ætlaði að skoða nýtt lúkk en þá skiptist bara allt saman! Jæja, fer að vinna í að breyta þessu í eitthvað flottara

over and out
| Il Corte Maltese...
heitir skemmtistaðurinn sem farið er á alla mánudaga hérna. Þetta er svona Bendidorm-stemmningsbar. Allir erasmusar fá allt á hálfvirði sem getur orðið nokkuð hættulegt. Kappinn kíkti þangað í gær ásamt bekkjarfélögum sínum og var þetta hin besta skemmtun. Kappinn pullaði nú samt einn svokallaðan bensa á þetta og skildi við liðið frekar snemma og dreif sig heim í háttinn.
Kappinn hefur áttað sig á að sambýlingar hans eru algerir snillingar. Einn heitir Marco og er frá Sikiley, spilar á gítar og er að leita sér að vinnu eftir að hafa klárað lokaritgerðina sína fyrir örfáum dögum. Síðan er það stelpan Helena, eða Elena, sem aldrei fer á fætur fyrr en um kl 3 alla daga. Ekki það að hún fari svo seint að sofa heldur sefur hún bara út í hið óendanlega. Síðan er það Lorenzo sem er frá Napoli. Pabbi hans á ólífuolíutréekru, eða eitthvað þannig, og því er alltaf nóg af ólífuolíu heima við hjá kappanum. Síðan er það e.t.v. mesti snillingurinn en það er hann Daníel, a.k.a. Daniele. Sá gaur á bara eftir að taka próf en er ekkert að drífa sig í því, stefnir á að vera búinn vonandi í mars. Hann á einn krakka sem spurði hann um daginn hvort hann vildi ekki kaupa fyrir sig tölvuleik. Daniele spurði krakkann sinn þá af hverju hann ætti að kaupa handa honum videogame og svaraði krakkinn því að það væri vegna þess að hann bæði pabba sinn ekki um að kaupa sígó handa sér. Tekið skal fram að krakkinn er 3ja ára. Daniele þessi er mikið fyrir að hlaupa og lyfta og ákváðum við því að fara saman í gær og kaupa okkur kort í stöð sem er hérna rétt hjá, byrjuðum bara á mánaðarkorti fyrir 50 euros. Kappinn telur eftir komu sína í þessa líkamsræktarstöð að þetta sé svona eins og Gym80 á Íslandi, bara massagaurar sem keppa í vaxtarrækt og slíku. Allir dyraverðir bæjarins lyfta víst þarna þannig að kappinn kemur til með að verða ofurvel plöggaður eftir fáeinar vikur. Í dag þyrfti kappinn að fara í súpermarkað að versla mat því hann er allur búinn, eina sem er eftir er Special K, mjólkin er búin þannig að það er ekkert voðalega spes. Jæja nóg í bili,

over and out
|
9.11.2004
Döjöfelsins snilld!
Dagurinn í dag var nú meiri snilldin. Byrjum samt á gærdeginum fyrir mjög svo áhugasama. Fór í skólann kl 5, meiriháttar tímasetning og var búinn kl. 8. Fór þá út að borða með erasmusum. Fyrir þá sem vilja vita þá taldi kappinn sig hafa séð eitthvað hreyfast inni í eldhúsi stelpunnar sem erasmusarnir hittust allir heima hjá áður, síðar um kvöldið þá hitti hópurinn stelpu sem hafði víst búið þarna í fyrra. Svo fór hún að tala um hvort stelpan sem býr þar núna hefði orðið vör við drauginn. Kappanum brá heldur betur í brún. Kemur þá á daginn að það sem kappinn var var við inni í eldhúsi, eitthvað sem var eins og einhver að horfa á en um leið og kappanum var litið inn í eldhúsið þá hvarf sá hinn sami, var helvítis draugurinn!! Kappinn svór við heilagan Benedetto að ekki stíga fæti oftar inn í þetta hús. Síðan var haldið út á lífið en kappinn tók því mjög rólega, enda hvort sem er útúrdópaður af einhverjum lyfjum sem hann er á vegna megakvefs aldarinnar. Lyfin eru að virka og kvefið er svo gott sem farið ( fyrir þá sem ekki hafa náð því nú þegar þá er umfjölluninni um kvefið beint sérstaklega til móður kappans sem er alveg að fara yfir um af stressi vegna þess ). Hélt kappinn heim á leið um kl. 12 í gærkveldi og horfði á ítalska grínmynd sem heitir svo mikið sem Non ci resta che piangere og er bara helvíti góð.
Eins og kom fram í upphafsorðum dagsins í dag þá er dagurinn í dag búinn að vera djöfulsins snilld. Byrjaði kappinn á að fara upp 498 tröppur til að komast ofan á turn. Þegar þangað var komið var tekin u.þ.b. 15 mín pása áður en gengnar voru aðrar 498 tröppur niður. Bent skal á að þessi æfing kostaði kappann 3 euros sem þýðir að þetta er mun ódýrara en stigavélin í WC. Jón Arnar ætti að kanna hvort hann komist upp tröppurnar án þess að meiðast, ólíklegt...
Eftir þessa menningarferð var haldið í listasafn Morandi. Fyrir þá sem ekki þekkja hann skal bent á þessa síðu hérna. Í stuttu máli var þetta maður sem hafði sínar skoðanir og teiknaði skrifborð, epli, glas og vínflösku. Einnig svaf hann í rúmi og málaði á kanvas, 30 x 40. Mjög svo athyglisverður maður. Fyrir þessa kúltúrferð greiddi kappinn 2 euros. Síðan hélt kappinn ásamt Wales-kum strák á götufestival. Þarna byrjaði snilldin fyrir alvöru. Heil gata hér í borg var lögð undir megaparty! Án gríns, íbúar götunnar höfðu allir búið til mat og keypt vín og gos og kappinn veit ekki hvað og hvað. Síðan var bara öllum gangandi vegfarendum boðið upp á ókeypis mat, vín, gos, skemmtiatriði, rokkhljómsveitir og svoleiðis, þetta var alger snilld. Kappinn gleymdi því miður myndavél en hún verður tekin með í kvöld þar sem stefnan er sett á Parco Nord. Þar verður megaveisla fyrir alla bæjarbúa sem fagna einhverju sem kappinn hefur ekki hugmynd um, enda svosem ekki það sem skiptir máli! Eftir þetta götufestival hélt kappinn ásamt öðrum erasmusum í knattspyrna og auðvitað setti kappinn mark sitt á leikinn, skoraði eitt og gerði aðra góða hluti sem hér skulu látnir ósagðir. Í kvöld er eins og áður sagði stefnan sett á Parco Nord en þangað hyggst kappinn fara ásamt erasmusum og nokkrum ítölum sem búa með honum. Fleiri var það nú ekki í bili gott fólk þannig að kappinn segir einfaldlega...

over and out
|
9.08.2004
Hósthóst...
Neinei, kappinn tekur bara svona til orða. Hann er víst aðeins kvebbbbbbinn þessa dagana, smá stífla í gangi og hóst en annars er ekkert að, ekkert sem kemur í veg fyrir að hann kíki aðeins út á lífið! Nú eiga eftir að heyrast óánægjuraddir en tekið skal fram að utandyra er hlýrra en innanhúss þannig að það þýðir ekkert að segja kappanum að halda sig innandyra. Svo tók kappinn hvort sem er með sér tryggingarskírteini sem er útgefið af hvorki meira né minna en íslenska ríkinu þannig að hann hefur alveg efni á að liggja inni á spítala ef allt fer á versta veg, sem ekki mun koma til með að gerast. Nough said...
Kappinn fór í sinn fyrsta ítölskutíma í dag. Nokkuð góður tími bara ef satt skal segja. Kappinn lærði að vísu ekkert voðalega mikið en kynntist fullt af fólki og stefnir á að hitta það í kvöld. Best þykir kappanum samt að það eru víst einingar innifaldar í þessu öllu saman þannig að þetta kemur bara allt saman út í einum stórum plús. Dagurinn í dag var nú svosem ekkert voðalega pródúktívur, kappinn tók því frekar rólega í morgun og hékk inni í herbergi til að verða 9 í morgun, fór þá út til að ná sér í dvalarleyfi. Við tók u.þ.b. hálftíma röð, sem líktist meira hrúgu af fólki - call it the italian way. Anywhooooo, kappinn beið s.s. í hálftíma og þegar röðin var komin að honum þá var hann vinsamlegast beðinn um að fylla út eyðublað, ná í ljósrit af vegabréfinu sínu í fjórriti, gera 4 passamyndir, blablabla og meira bla og koma aftur kl.3 í dag. Leið og beið. Klukkan 3 mætti kappinn galvaskur aftur en sneri von bráðar til baka sömu leið og hann kom þar sem hann sá biðröð dauðans. Meiriháttar. Svo fór hann í tíma kl.5 og var til hálf 8 og kom heim til að elda pasta með túnfisk og situr nú hér að skrifa. Mjög merkilegt allt saman semsagt. Jæja, ekki meira í bili, þarf að fara út í risastórann garð að hitta fólk.

over and out
| Hósthóst...
|
9.07.2004
Buon Giorno
Jæja kæru aðdáendur, kappinn veit varla hvar hann á að byrja...

Á föstudaginn hélt kappinn í IKEA til að kaupa ýmsa hluti, eins og t.d. þetta rúm. Ferðin í IKEA gekk alveg ágætlega, þökk sé ítölskum leigubílstjóra sem einu sinni hafði ætlað að fara til Íslands á mótorhjóli en svo dó konan hans eða eitthvað þannig og þetta var allt mjög mikil raunarsaga þannig að hann hætti við að fara. Nú jæja, hvað um það. Kappinn fór í IKEA og var búinn að finna rúmið og fannst alveg tilvalið að hafa skrifborð á neðrihæð rúmsins en það kom ekki fyrr en í gær þannig að ákveðið var að bíða með að kaupa rúmið og gera allt saman í einum pakka til að halda sendingarkostnaði niðri. Svo var hringt á leigara til að komast aftur heim en þegar kappinn ætlaði að borga bílstjóranum þá var veskið EKKI Á SÍNUM STAÐ!!! Ekki það að veskið sé alltaf á sama stað heldur var það bara gjörsamlega ekki til staðar! HOLY CRAP... ekki alveg nógu spes að vera með alla peninganananana í veskinu og öll kortin, hvort sem það voru debet, kredit, ökuskírteini, nemendaskírteini eða hvað þau heita nú öll saman. Anyways, þetta var allt farið. Meiriháttar. Kappinn þurfti því að þola fúkyrði, smánaryrði, niðurlægingu og fleira slíkt af hálfu bílstjórans sem þó var nógu góður að leyfa kappanum að fara út úr bílnum án þess að borga. Eftir þetta bjallaði kappinn auðvitað í sinn helsta bandamann heima á Fróni, þ.e. Martinu, og bað hana um að loka öllum kortum sem hún og gerði. Síðan hófst mikið stressildi við að reyna að bjalla í IKEA til að sjá hvort þeir hefðu fundið veskið en þá svaraði bara alltaf einhver fjandans símsvari sem var að auglýsa allar vörur þeirra og fleira slíkt crap. Endaði dagurinn á því að kappinn fór upp í rúm með bók að lesa þar til hann sofnaði, mæli mjög mikið by the way með Da Vinci skjölunum.
Á laugardaginn hélt kappinn á slóðir frænda sinna og frænku sem áttu að redda honum með cash og fleira slíkt því ekki átti kappinn neitt. Hinsvegar náði kappinn að bjalla í IKEA og kom þá í ljós að einhver hafði fundið veskið og skilað því í afgreiðsluna, monningar og allt á sínum stað, takk fyrir og túkall. Ofvirki frændi kappans kom og sótti kappann og sóttu þeir félagar veskið og héldu í heimahaga frændans, tók bara c.a. 2 tíma og 180 eða svo... Hann má nú alveg eiga það strákurinn að þrátt fyrir að vera ofvirkur knattspyrnumaður sem hugsar ekki um annað en kven þá er hann alveg ágætur greyið, vill allt fyrir alla gera.
Kappinn hélt svo heim á mánudag, í gær, og hitti aðra erasmus skiptinema og borðaði með þeim kvöldmat. Síðan var farið út á einhvern bar þar sem kapteinninn hefði átt að gera góða hluti en hann var víst ekki til svo að annað var látið vega upp á móti el capitan-skortinum. Menn geta bara getið sér til um ástand kappans við þessi skrif, klukkan er by the way c.a. 8 núna...
Kappinn fer í tíma í dag, reyndar bara til að læra ítölsku, sjáum til hvernig það fer. Tíminn er allavega alltaf á þriðjudögum frá kl. 17 til 19:30 og svo er annar tími á einhverjum öðrum degi en meira kemur kappinn til með að vita eftir tíma dagsins í dag.
Heyrði aðeins í elskunni minni og líka í alvöru elskunni minni, skoraði nokkur stig þar (vona ég). Jæja, nóg í bili. Kappinn ætlar aftur upp í rúm (eða öllu heldur, að leggjast á dýnuna sem er á gólfinu) og sofna aðeins aftur.

over and out
|
9.03.2004
Kappinn mættur heim...
Jæja gott fólk, it´s official. Kappinn er mættur til föðurlandsins. Fyrsta opinbera færsla kappans erlendis lítur dagsins ljós. Flugvél kappans lenti með hann um borð á Bologna flugvelli í kringum 7 leytið í gær, að staðartíma auðvitað, eftir c.a. 4 og hálfs tíma flug. Byggingin, sem íbúðin er staðsett í, er flott með fullt af litlum verslunum á neðstu hæðunum en kappinn er með herbergið á 3.hæð. Anddyri hússins snýr beint út að aðalgötu bæjarins þannig að umferðin er frekar mikil. Kappinn þarf þó ekki að búa við það ónæði þar sem herbergi hans snýr út að bakgarðinum og er því mjög hljóðlátt þar, eins og reyndar leigusalinn var búinn að lofa. Snilldarstaðsetning er á íbúðinni, það eru ekki nema svona 15 mín á aðaltorgið héðan, bein leið bara áfram, það er allt hérna fyrir neðan sem maður þarf eins og t.d. hraðbanki, apótek, pizzeria, bakarí, símakortablökkumaður með símaklefa þannig að ég get hring t.d. til USA eða þá í hann elsku pabba minn, súpermarkaður og já dömur mínar og herrar - síðast en ekki síst MÓTORHJÓLASALA!!! Dadada!!! Það er bara ekkert verið að freista manns hérna. Kappinn leit við í súpermarkaðnum áðan og keypti sér eftirfarandi hluti :

1.stk. banani
1.stk. pera
1.stk. kellogs special K
1.stk. fitulaus mjólk
1.stk. næring sem átti að vera sjampó
2.stk. jógúrt

Mjög merkilegur listi þar sem þetta eru jú fyrstu opinberu innkaup kappans. Svo kíkti kappinn á vinkonu sína í Vodafone, hana Katy, og fékk sér símanúmer. Það er sem hér segir: 0039 -340-848-6300. Pís of keik símanúmer!!! Yeah rææææææt.
En víkjum okkur nú aftur að aðalmálinu...
Allir þeir sem kappinn hafði lofað gistingu, better think again.. Ástæða þessa er ofureinföld, herbergið er svona c.a. 1.70 x 4 metrar. Þetta er s.s. alger hola sem kappinn fékk og útskýrir það hluti eins og t.d. lágt verð og ofuráherslur leigusalans á hljóðlátt herbergi. Til að sjá myndir af Holunni, en það er íbúðin sem kappinn er í, geta unnendur kappans smellt á myndalinkinn hér hægra megin á síðunni. Kappinn hyggst þó fara á morgun í IKEA og kaupa koju til að sofa í. Hugðist kappinn hafa skrifborð á neðrihæðinni til að spara plássið og þar væri hægt að planta eins og t.d. 1 - 2 íslendingum, allt eftir stærð og vilja að sjálfsögðu.
Síðan hefur kappinn mixað ýmsa hluti í dag, búinn að vera mjög svo pródöktíf í dag. Skráði sig í skólann, hitti aðra útlenda lagsa og hékk með þeim soldið og rölti síðan um. Skemmst er að minnast símhringingar kappans í ofvirka frænda sinn sem fékk strax þá hugdettu og bruna til kappans, bara svona c.a. 1 og hálfur tími í bíl, fara með honum í IKEA og kaupa rúm og eitthvað drasl þar og bruna svo heim til frændans í kvöldmat og gista þar. Síðan er frændinn að fara að spila einhvern alvöru fótboltaleik á sunnudag og hyggst kappinn fara og fylgjast með skyldmanni sínum verja mark liðs síns.
En hvað um það, látum þetta vera fyrstu færsluna í bili
Over and out
|