Sæl veriði.
Ég vil byrja á að þakka þeim sem hafa sent mér afmæliskveðju í dag. Það eru nokkrir skal ég ykkur sko segja. Samt sem áður er fólk beðið með að reyna nú að halda aftur af sér, ekki láta undan spennunni. Afmælið er nú ekki fyrr en á laugardaginn sko, þeir sem þegar hafa sent Kappanum kveðju eru vinsamlegast beðnir um að endurtaka kveðjuna á laugardag.
Fór í gær á mótorhjóli um Bolognaborg. Við skulum bara kalla þetta mótorhjól en ekki vespu eins og líklegast væri réttast. Þetta var hið mesta gaman þótt ferðin hafi verið stutt. Fór á mótorhjólinu alla leið niður í bæ og til baka, þorði ekki meiru...Allt í allt hefi eg liklegast verid í u.þ.b. 12 mín og 47 sek á mótorhjólinu. Það eina sem skemmdi gamanið var hvað það var ÓGEÐSLEGA kalt að bruna um á mótorhjólinu kraftmikla. Hefði alveg eins getað verið ber að ofan held ég, fólk hefði nú ekki hatað það svona eftir jólin með belginn út í loftið...
Lesturinn gengur ágætlega, reyndar ekkert alltof vel en samt bara allt í lagi. Síðustu dagana hef ég áttað mig á hvað lagaorðaforði er ótrúlega morkinn og öðruvísi en allt annað. Þetta er allt svo sértækt eitthvað, félagarnir hérna heima (þeir fáu sem eru komnir aftur þ.e.a.s. því að fólk er jú ekkert að flýta sér neitt að koma aftur til að taka próf) skildu m.a.s. voðalega lítið hvað verið var að tala um í bókinni Diritti Internazionale Privato Italiano, nánar tiltekið í undirkaflanum (haldið ykkur nú fast)
La disciplina internazionalprivatistica contenuta in norme di parte speciale e l´oppurtunitá di riferirsi particolarmente a quella relativa a materie per le quali precedentemente trovavano ampia applicazione norme di applicazione necessaria.
Takk fyrir það. Eins og sjá má þá hefur höfundur bókarinnar ekki hagsmuni nemenda í fyrirrúmi heldur reynir að hafa nafnið á kaflanum jafnlangt, helst lengra, en kaflann sjálfan. Spurning um að einhver reyni að koma Þorgeiri Örlygs í samband við þennan mann því þeir deila sama áhugamáli, gera bækur eins dýrar og mögulegt er.
Þá komst ég líka að því í dag að eyrnatapparnir sem ég hef verið að nota eru orðnir helst til skítugir. Lagði þá á borðið og svo henti ég bók frá mér og hún fór ofan á þá. Þegar ég fór svo að leita að þeim fann ég þá ekki alveg strax, lyfti upp bókinni en þeir voru ekki undir henni. Lítur kappainn síðan ekki undir bókina og sér að þeir eru klístraðir fastir á bókinni, klístrið má þakka miklu magni eyrnamergs sem á töppunum er að finna. Nota nú aðra tappa en þessa þarna.
Nóg í bili,
over and out