Kappinn
Helgin
Jæja, helgin komin. Það er víst óvissuferð, kvöldmatur og djamm hérna í vinnunni í kvöld. Verð nú að viðurkenna að ég er frekar spenntur yfir því. Stefni á að djamma vel í kvöld. Þó ekki of vel þar sem ég var að komast að því að fokkins litliputtinn á mér er búinn að kosta mig 10 þús kall síðan hann ákvað að sýkjast af gulleitu drasli um daginn. Mjög dýrt spaug þessi líkamsvessabuna mín. Held ég sleppi henni næst. Næsta skipti verður þó e.t.v. ekki jafn dýrt þar sem ég er óðum að nálgast viðmiðunarupphæð afsláttar hjá TR! Meiriháttar afrek það.
Síðan styttist óðum í að ég fari til Bologna aftur að hitta Erasmusana mína, djöfuls stemmari verður það!
Allavega, stefni á að taka semi-fulla gæjann á þetta þar sem það tókst ekki í síðasta vinnupartý-i. Ætli maður hendi ekki nokkrum sms-um á fólk og hringi jafnvel til útlanda.
Helgarkveðjur,
Kappinn
|
Morning
Sælt veri fólkið (örugglega ekki margir sem lesa þetta). Komst í ræktina í gær í fyrsta sinn síðan drepsóttin mikla herjaði á mig og einnig eftir að puttinn á mér kom úr ígerð. Tók þokkalega vel á því, hlóð fallbyssurnar vel og rækilega enda engar túttubyssur hér á ferð. Fyrir þá sem hafa áhuga á svoleiðis er þeim bent á að snúa sér að Sekknum og matarmyndum hans því til sönnunar.
Annars verð ég að lýsa yfir ánægju minni með innflutningsgjöf Sekkjarins og Stóra-Hunds, bróður hans. Einkar vel til fundin gjöf sem á eftir að halda manni góðri skemmtun í spilaranum. Í ljósi þessarar innflutningsgjafar þá á þetta myndband hérna sennilega vel við (þeir sem eru kunnugir gjöfinn skilja þetta væntanlega tenginginu við þetta - þið hin væntanlega ekki) http://youtube.com/watch?v=fbGkxcY7YFU (kann s.s. ekki að útbúa hyperlink á þetta...)
Annars er Sæmi maður marsmánaðar og sennilega fleiri mánaða ef fram heldur sem horfir.
|
Ég kann ekki að laga þetta template kjaftæði sem er í gangi hérna. Stafirnir á linkunum eru í fokki og svo er eitthvað megabil frá titli niður að texta. Fokk it, mér er slétt sama. Ef þið kunnið að laga þetta þá megiði endilega koma með ábendingar. Fór í leikhús í gær á Killer Joe, frekar kúl leikrit. Það fór samt soldið fyrir brjóstið á manni þegar kjúklingalæri var notað til vafasamra athafna en að öðru leyti var þetta bara mjög gaman.
Annað sem er í fokki er I-podinn minn. Get ekki kveikt á honum sem er mjög bagalegt í ljósi þess að ég var að hlaða inn á hann heilum hellingi af lögum.
Þriðja sem er í gjörsamlegu fokki er puttinn á mér. Tókst að hvíla mig svo gríðarlega vel síðustu helgi að ég fann ekki einu sinni þegar puttinn á mér náði suðumarki á ofninum við rúmmið. Mjög spes að vakna með fjall af vökva undir húðinni á puttanum. Síðan var hægt að kreista þetta þannig að bunan stóð út og náði marga metra hæð. Líkamsvessagosbrunnur. Mjög eðlilegt. Ég býst við því að það hafi líka verið mjög eðlilegt að fá ígerð í þetta eftir þetta trix. Fór upp á heilsgæslu og spítala með puttann á mér og er kominn með megaumbúðir í aðra og pensilín í hinni.
Annars hef ég fengið gríðarleg viðbrögð við endurkomu Kappans í netheima, fólk almennt ánægt með þetta framtak. Það virðist þó vera þannig að þegar ég fer til Bologna þá hefjast skrif hérna aftur. Fer út 3. april nk. og kem aftur 10. Páskarnir verða s.s. haldnir mjög heilagir á Ítalíu.
Heyrði aðeins í Sekknum í morgun, hann var víst að klára prófin úti og tók nett á því. Spurning um að feta í fótspor hans og gera sig líklegan til afreka um helgina? Sjáum til með það.
Djöfull bíð ég spenntur eftir að sjá hvort það komi einhver komment hérna! enúúú....
|
Magnað...
hvað enginn nennir að fylgjast með þessu hérna lengur. Mér er svosem slétt sama líka. Sushi síðasta föstudag í góðra manna hópi. Sjáum hvað helgin ber með sér, vonandi eitthvað annað en brunasár og ígerð.
|
Já, ég er nýr maður. Kominn á byrjunarreit en er samt með smá forskot. Látum þetta nægja í bili.
|