Já gott fólk, segja má að það sé alger alsæla í gangi hjá comrad Kappi þessa dagana. Erfitt er að gera sér grein fyrir hvar byrja skuli frásögn þá er útskýrir alsælu kappans. Byrjum bara á gærdeginum. Dagur kappans hófst nokkru fyrr en vanalegt er hér í kjarna Rómarveldis hins forna, um 8 Uhr (lesist á þýsku eftir kommuna). Lesið var allan daginn og veitti það kappanum meiriháttar hamingju, ekki laust við að fiðringur hafi farið um maga hans. Þá er gærdagur kappans útskýrður að mestu. Lesið var frameftir degi en er rökkva tók ákvað kappinn að hitta breska félaga sína á einu margra öldurhúsa Bolognaborgar. Kappinn ákvað að halda snemma til síns heima og var því kominn upp í rúm rétt eftir að klukkan sló 00:00 að staðartíma (GMT +1). Dagurinn í dag hófst á sömu nótum nema breytt var til að haldið í ræktina. Líkami og hugur runnu saman í eitt í þær heilu fimmtán mínútur sem Kappinn var á hlaupabrettinu. Meiriháttar hvað maður er dottinn úr formi, var nebbla í svo svakalega fínu formi fyrir jól! or not...Allavega, sjaldan sem það kemur fyrir að maður finni blóðbragð í munninum og verki í lungunum eins og þau hafi aldrei verið notuð, kenni alfarið jólunum um og Sekknum auðvitað líka. Þar sem kappanum leist nú ekkert á blikuna ákvað hann að hætta að hlaupa (skokka)...(rölta)...(labba hægt)...(...)og skella sér í lóðin. Þar var skynsemi höfð í fyrirrúmi og létt tekið á öllu. Morgundagurinn verður spennandi með meiru, spurning um hvort maður þurfi verkjalyf við harðsperrum/hassperum. Annars er ég að skrifa ömmu og afa bréf hérna, þau vildu heyra eitthvað frá barnabarni sínu á Ítalíu og varð ég fúslega við þeirri beiðni í dag. Hef ekki skrifað bréf á pappír forever held ég bara. Man reyndar þegar maður var mjög rómó hérna í gamladaga og sökum aðstæðna á þeim tíma var notast við pappír, blýant og ilmvatn...förum ekkert nánar út í það...
Gunnsan er farin af landi brott líka, sem og Sekkurinn. Spurning um að fara að breyta þessu viðurnefni í hlunkinn þar sem hann verður það líkalega við heimkomu sína. Ástæður þess tel ég einkum vera eftirfarandi:
Nr.1. Sekkurinn ákvað að taka bróður sinn með sér út og sá er nú ekkert fyrir eþíópískan matseðil
Nr.2. Sekkurinn "má" víst ekki hreyfa sig neitt þessa dagana, "skv. því sem læknirinn sagði" eins og fram kemur á blogginu hans. Tökum því nú með fyrirvara...
Vil minna fólk á að Gunna er að útskrifast og öll viljum við nú fá hana heim. Þar sem hún er nú mjög fátækur námsmaður þá hefur Þjóðarhreyfingin stofnað til söfnunar samhliða söfnun sem fram fer fyrir auglýsingu í New York Times. Söfnunin ber heitið " Gunnu heim ". Bent skal á símann 904-15-99 og dragast 5000 krónur frá við hvert símaat.
Eftirfarandi kveðja er víst mjög í tísku innan lagadeildar og sem auðmjúkur laganemi skal hér því sagt:
þetta hefur verið Kappinn í Bologna fyrir hönd hans sjálfs...