Jæja, prófin búin. Gekk bara fínt. Það merkilegasta er e.t.v. að Kappinn og Gorkan eru bara farin að búa. Ótrúlegt en satt gott fólk! Meggimeggi ákvað að fara með elskunni sinni til kóngsins Köben og skildi eftir íbúðina sína fyrir okkur. Eftir langar og strangar samningaviðræður fékkst hann til að láta okkur eftir íbúð sína og sinnar og eftir lengri og mun strangari samningaviðræður um greiðslur v/íbúðarinnar fengum við þetta á spot prís mætti segja. Þannig að nú erum við komin í hofteiginn þar sem ekkert hús nr. 2 er til, sofum við hliðina á kirkjunni og svo eru krakkar með skopparabolta hérna fyrir ofan sem skemmta okkur á morgnana. Annars gengur bara fínt hjá manni, fékk kúrsus hjá Mörkinni lögmannsstofu núna í janúar og það gengur vel. Geggjað góður mórall hjá þeim og allir í stuði. Kokteill fór þar fram síðastliðinn föstudag, þ.e. föstudaginn 21 jan sl. og var fínt. Effabarn mætti með bindi sem hefði svosem alveg getað farið upp á haus strax á öðrum bjór. Einnig var Gunni minnisstæður (sauna-gunni) eftir að hafa þakkað kærlega fyrir sig, sixpakk inná sér, einn í hvorum vasa og með 2 í fangi. Flottur á því! Menn allavega mundu eftir honum! impressive...
Svo er planið fyrir feb að fara aðeins í ræktina kannski, arnar grant er aftur kominn með óþægilega mikið forskot. Við tryggvinn hyggjumst því saxa á hann aftur með hjálp sölva fannars, einkaþjálfunarmógúls íslands (sorry gillz...)
aight, l8r