þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
6.22.2005
Jæja
Þá er þetta búið. Síðasti heili dagurinn hérna í Bologna. Þetta hefur verið geggjað gaman en ég held satt best að segja að þetta sé orðið alveg nóg. Síðasta prófið gekk nú ekkert alltof vel, ég held að það megi þakka mjög "góðum" og "miklum" lærdómi á ströndinni síðustu daga fyrir prófið...

Ég er allavega að fara heim til Íslands annaðkvöld, þ.e. fimmtudagskvöld, þannig að maður verður kominn heim aðfararnótt föstudags. Við tekur endalaus gleði því ég þarf víst að samfagna þeim sem voru að klára lögfræði, sama hvort það er B.A. eða mag.jur. eða PH.D. eða LL.M eða hvað þetta heitir nú alltsaman.
|
6.15.2005
Special Olympics
Jæja jæja, er búinn með 4 próf og á eitt eftir. Þetta fer nú að styttast allverulega hérna í annan endann. Í gærkvöldi var James, bretinn, kvaddur með flugeldasýningu. Við tókum gott kvöld. Ég hélt að þetta yrði ekkert mál að kveðja liðið hérna en þetta var nú samt frekar leiðinlega að þurfa að segja bless. Hann kemur þó upp á Klakann í september þannig að aðdáendur mínir geta hitt legendið.
|
6.08.2005
Æi, ég hef bara ekki rassgat að segja þessa dagana. Dagarnir eru allir eins:

1. Vakna
2. Borða
3. Læra
4. Hádegismatur
5. Læra
6. Lyfta
7. Læra
8. Læra
9. Kenna íslensku
10. Læræ
11. Sofa

Spennandi eða hvað...
|
6.01.2005
Hérna á víst að koma einhver titill en ég veit ekkert hvað ég á að setja hérna
Jamm og jú, jamm og jamm og jú. Þá er maður bara kominn hingað til BOlogna aftur eftir mjög svo vel heppnaða heimferð sem kom næstum því öllum á óvart. Annars virðist maður bara vera sá eini sem er eftir hérna í útlöndum og allir aðrir komnir heim á klakann. Gunnsan búinn með sitt, VicdaSlick búinn með sitt, allir í HÍ búnir í prófum, Martina útskrifuð...shit hvað maður er greinilega að missa af öllu bara.

Fór í próf í dag og náði, við skulum bara segja að ég hafi náð og ekkert meira. Ég er reyndar bara nokkuð sáttur við það miðað við undirbúninginn. Eins og flestir nákomnir mér vita þá eyddi ég heilum 2 dögum í að læra fyrir þetta próf þannig að árangurinn er svosem allt í lagi. Fyrir þá fáu laganema sem hingað kíkja er e.t.v. gaman að minnast á að ég tók H.1990:2 fyrir í prófinu í dag og þótti prófessorunum þetta ansi merkilegur dómur. Síðan komu nokkrar spurningar sem ég annaðhvort kunni svör við eða ekki og svo klassískt djók svona í lokin hvort ekki væri kalt á Íslandi. Mjög frumlegt spaug. Reyndar var þetta einhver eldgamall jálkur á kentinum sem kom með þetta og hann átti m.a. að ákveða einkunnina þannig að maður tók mjög jákvætt í frumlegheitin og brosti út í annað hugsandi: "hahaha....já mikið ertu sneddí maður...hehe...best að halda brosinu þangað til hann hættir..." Svarið var að sjálfsögðu að Ísland væri nú ekki svo kalt eftir allt saman og ef honum yrði kalt á meðan á heimsókn hans stæði þá gæti hann alltaf fengið heitt og gott pasta á veitingastaðnum Ítalíu! Ekki slæmt svar! Gulltryggði að maður næði!!!

Annars er það helst að frétta héðan að Kappinn vaknar fyrir sólarupprás alla morgna til að fara út að skokka. Það er allt gott og blessað en það merkilega við þetta allt saman er að þegar út er komið þá er hlýrra þar heldur en innandyra, sem er ekki alveg nógu spes því að svo á dagurinn eftir að fara hitnandi og rakinn hérna er alveg gríðarlegur þannig að maður svitnar allan daginn. Svitastikkið er s.s. að fara á kostum þessa dagana og er gengið með það um í vasanum nánast.

L8R
|