Já! Þannig er það nú bara, aðdáendum Kappans hefur fjölgað um gríðarlega mörg prósentustig, þökk sé Hr. Andrési. Er hann hér með boðinn velkominn á Kappann.
Annars átti ég ansi áhugaverðar umræður við MeggaMegg í dag í vinnunni. Umræðan laut að útihlaupum Frú MeggiMegg. Kappinn lýsti yfir ánægju sinni með framtak konunnar og spurði á hvaða tímum dags hún hlypi, með væntanlega þátttöku sína í huga. Kvað MeggiMegg þá konu sína hlaupa eftir vinnu á kvöldin. Kappinn benti þá á að hjá sér væri ástandið þessa dagana þannig að það væri ekkert til sem hægt væri að kalla eftir vinnu, aðeins á milli vinnu. Já góðir hálsar, vinnan er minn samastaður þessa dagana.
Bið að heilsa í bili,
kv.
Kappinn
Veit ekki hvort nokkur fylgist með þessu bloggi lengur. Ég geri allavega ekki ráð fyrir því. Hverju sem því líður þá er þetta svo sem alveg ágætt til síns brúks. Var t.d. einhvern tímann að fletta í gegnum gamlar færslur frá Bologna og þar var að finna fullt af atriðum sem ég hafði bara gjörsamlega gleymt. Ætli það sé ekki fínt að vera með svona dagbók þannig maður geti nú séð hvað maður var að gera á sínum yngri árum. Annars var Kappinn, í félagi við Mágsinn, að versla sér 1. stk. mótorfák. Já, það leið ekki á löngu að Kappinn fengi sér ítalskan eðalfák. Ducati Monster - frekar svaka kúl hjól. Á mótorhjólanámskeiðinu sagði "kennarinn" að til væru tvenns konar mótorhjólakappar. Þeir sem hefðu dottið og þeir sem ættu eftir að detta. Þess skal getið að Kappinn fellur nú í hinn fyrri flokk. Engar áhyggjur gott fólk, þetta var alveg í lagi, rústaði aðeins á mér hnéinu og svo sat þetta soldið á sálinni í smá tíma. Annars bara nokkuð góður á því.
Miðað við bloggárangur síðastliðinna mánuða þá býst ég við að setja hérna inn færslu ekki síðar en eftir áramót!
kv.
Kappinn