Var að horfa á fréttirnar hérna á netinu. Sá að það er búið að setja upp svona bráðabirgðar-flóðbylgju-mælingatæki þarna við indlandshaf. Þetta voru svona 2 mælitæki, annað þeirra var stafrænt en hitt svona handvirkt vatnshæðarmælingartæki. Þegar ég horfði á þetta fór ég að spá í einu, sko... þetta handvirka vatnshæðingarmælingartæki, er þetta ekki eitthvað djók. Ég er kannski ekki alveg að skilja þetta rétt, vona allavega að svo sé. Skv. því sem kemur fram í fréttinni þá getur fólk séð þegar vatnshæðin er farin að hækka mjög mikið og það getur gefið fólki til kynna hvenær það skuli fara að hlaupa af ströndinni. Ok, nú er sko tvennt í þessu, virkar svona tsunami-flóðbylgja ekki þannig að fyrst sópast vatnið allt burt af ströndinni? Mig minnir það allavega eftir mjög svo góðar líking Guðbjarts í jarðfræði í MR. Slíkt tæki kæmi þá nú ekki miklum notum til að sýna vatnshæðina, ekki nema þá að fólk gæti séð að það væri bara engin vatnshæð, bara komin í mínus örugglega. Ok, svo er hitt...miðað við myndirnar af þessu öllu sem hafa verið í gangi síðan þetta gerðist þá tekur þetta nú mjög skjótan tíma að komast að landi og bruna yfir það. Efast um að einhverjir eyjaskeggjar fari eitthvað að kíkja á þessi 2 prik með spotta á milli sem sett voru í sandinn þarna á ströndinni þeirra, þegar megatúrbóflóðbylgja er að komast, ég meina - bara að sjá slíka öldu ætti nú örugglega að vera nóg... Ég hlýt að vera eitthvað að misskilja þessa frétt, einhver að leiðrétta mig takk fyrir....Annars er ekkert nýtt í þessu, lesalesalesalesa....
over and out