Varð vitni að miður skemmtilegum hlut hérna rétt áðan. Sá mann deyja í beinni og þá er ég sko að meina Í BEINNI gott fólk. Maðurinn var að keyra, allt í einu kemur bíll brunandi út götu og út á gatnamót og nær ekki að hægja á sér, klessir á annan bíl og that´s it. Hann var dreginn út úr bílnum og lagður á götuna og hjartahnoð reynt í svona 20 mín örugglega áður en sjúkraliðarnir á staðnum gáfust upp. Þeir héldu að hann hefði jafnvel fengið slag undir stýri, hvernig bílnum var ekið benti til þess líka, þetta var ekki mikil ferð og gærinn virtist vera að reyna að afstýra árekstri, miðað við það hvernig hann klessti á allavega. Nú liggur maðurinn bara undir laki hérna beint fyrir utan útidyrahurðina mína. Ég var að koma heim með strætó og sá bara verið að hnoða mann í götunni. Sá framan í hann og það var ekkert voðalega spes verð ég að segja, hann var náfölur með rör upp í sér og augun uppglennt, frekar hrikaleg sjón. Svo er búið að ná í nærstadda og þeir eru hérna fyrir neðan og eru bara viti sínu fjær, sem er svosem eðlilegt.
Merkilegt hvað þetta getur gerst hratt. Maður spáir aldrei neitt í að svona lagað geti hent mann, enda svosem engin ástæða til þess. Held samt að maður ætti að læra að njóta hlutanna á meðan maður hefur þá meira en hingað til. Ok, nóg um látna manninn hérna niðri.
Fór til Mestre í gær, frænkan býr þar sko. Þar var haldin afmælisveisla fyrir mig og frænda minn sem á afmæli í dag. Fórum í bíó, svona í tilefni dagsins maður!!!, sáum mynd sem ég held að heiti Saw á enskunni (bara ítalskt heiti á myndinni auðvitað og það var L´Enigmista eða gátukallinn eða eitthvað þannig - af þessu má sjá að auðvelt er að draga þá ályktun að myndin heitir Saw á ensku). Þetta er án efa ein ógeðfelldasta mynd sem ég hef séð. Ég er nú vanalega alveg til í að sjá svona svokallaðar splatter myndir og fjöldamorðingja og slíkt en þetta var nú bara einum of. Menn að saga af sér líkamsparta til að komast út úr einhverju búri, fólk sem hleypur á gaddavíra þar sem eina leiðin út er í gegnum þá en það nottla deyr, og það er nottla sýnt þegar gaurinn hleypur í gegnum endalaust mikið af gaddavír og drepst með inniyflin út og allt, þetta er algert ógeð. Hvering dettur mönnum í hug svona handrit var ég að spá, þetta hlýtur í alvöru að vera einhver geðsjúklingur sem skrifaði þetta, mamma hans fann svo gamla handritið hans inni í herberginu hans eftir að hann var lagður inn á stofnun og notað þetta efni til að komast í feitt! Það er ekki séns að heilvitamenn fari að skrifa eitthvað svona. Mér s.s. líkaði myndin ekkert ofsalega vel, leið líka illa eftir allt þetta ógeð sem var í gangi þarna.
Víkjum okkur þá niður á lestarstöð Mestre.
Þangað hélt kappinn kokhraustur kl.19:45 að staðartíma, fullviss um að fá miða heim til Bologna þrátt fyrir að verkfall ætti að skella á kl.21:00. Fór og keypti miðann úr svona sjálfsala og allt bara meiriháttar. Var svo kominn með annan fótinn í lestina þegar ákveðið var að tilkynna að þessi lest væri takmörkuð við ferð til Padova, sem er svona 30 mín ferð frá Mestre en frá Padova eru svona 5 dagar labbandi til Bologna þannig að ég ákvað nú bara að fara ekkert með þessari lest. Gisti þarna uppfrá hjá frænku og kom svo heim með fyrstu lest í morgun. Þetta reddaðist s.s. allt saman.
Núna sit ég bara hérna að reyna að plögga mega plott en það nefninlega að fara í bíó! Virðist ekki ætla að ganga þannig að ætli maður verði ekki bara að snúa sér aftur að bókunum, veitir víst ekki að.
Ég vil bara senda hérna persónulega kveðju. Benni! Þú ert að standa þig, gaman að fá kveðjuna frá þér. Takk fyrir það. Sá líka þínu síðu, held ég...eitthvað með mjög svo pólitísku ívafi, ekki satt?
Læt þetta vera nóg í bili,
L8R = S1A