þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
10.28.2004
Update
Sælt veri fólkið. Hér á eftir fer eilítil ferðasaga sem fjallar um súkkulaðifestivalið. Upphaflega útgáfan "vistaðist" ekki eins og til stóð og því fylgir hér styttri útgáfa.

" Það var einn sólríkan dag í októbermánuði 2004 að kappinn&Co ákváðu að halda til Perugia. Förinni var þangað heitið þar sem haldin var árleg súkkulaðihátíð þar í bæ á þessum tíma árs. Lagt var af stað snemma morguns með lest. Komið var til Perugia um nónbil og strax hófust kappinn&Co að hakka í sig súkkulaði sem var að finna ókeypis hér og þar. Hátíðin fer fram utandyra að mestu nema súkkulaðiskúlptúrar sem gerðir eru innandyra, enda myndu þeir annars bráðna utandyra í hitanum sem enn er hér, eða var. Miðbærinn er allur þakinn tjöldum og þar er að finna flestar, ef ekki allar, tegundir súkkulaðis sem hægt er að ímynda sér. Kappinn fann m.a.s. súkkulaði með bjórbragði! (Það var ógeðslega vont by the way). Eftir að hafa borðað súkkulaði og fleira góðgæti þá var haldið til Firenze, eða Flórens eins og Frónbúar kjósa að kalla borgina. Þar var fundinn lítill og snotur staður til að borða á. Síðan var haldið á aðaltorgið þar sem fundinn var flottur bar, drykkir pantaðir fyrir offjár og sorglegur söngvari var með hljómborð og söng gamla slagara. Síðan var tími til kominn fyrir ferðalangana að halda heim á leið eftir mikið og skemmtilegt ævintýri. Og allir lifðu vel og lengi upp frá þessu"...

Þetta var s.s. styttri útgáfan. Vilji fólk fá lengri útgáfu og skemmtilegri er hinum sömu bent á að hringja í kappann. Blóm og kransar afþakkaðir.

Kappinn er í miklum ferðahug þessa dagana. Þetta hefur leitt til þess að ákveðið hefur verið að kappinn&Co (kappinn&Co er samheiti fyrir kappann og þá sem fara með honum eitthvert - ekki endilega sama fólkið öllum stundum) fari til Frakklands þessa helgi. Stefnt er á að heimsækja uppáþrengjandi andfýlukonuna sem var alltof lengi hjá okkur fyrir svolitlu síðan. Brottför er áætluð um hádegisbil á morgun og endurkoma kappans&Co til Bologna verður ekki fyrr en á mánudagskvöld þar sem frí er í öllum skólum hér á landi þann sama dag, einhver dauðahátíð eða eitthvað slíkt í gangi.

Daniele, a.k.a. Jeff Goldblum eins og maxternator komst að, á afmæli á morgun. Stefnt er að halda upp á það með pompi og prakt að sjálfsögðu, í Frakklandi, og farið verður út að borða.

Kappinn kveður því sig og sína fram að mánudegi og biður aðdáendur sína vel að lifa.

Góðar stundir
|
10.25.2004
jújú, þetta er alveg meiriháttar. Kappinn var bara ekkert búinn að skrifa heila ferðasögu og "vista" á þessu bloggi til að "posta" seinna. Síðan "vistaðist" þetta nottla ekkert þannig að öll ferðasaga kappans verður að bíða betri tíma síðar í dag. Á meðan getur fólk skoðað þessar myndir hérna. Over and out í bili.
|
10.21.2004
Kappinn tilkynnir: Brottför á morgun, 22.10.04 kl 07:30 til Perugia á súkkulaðifestival. E.t.a. er 10:45 og hefst þá súkkulaðiát allan daginn til klukkan 18:00. Frá klukkan 18:26 til 20:30 hyggst kappinn svo vera í lest á leið til Flórens og ætla kappinn&Co að fara út að borða þar. Síðan verður djammað smá, bara rólegt að sjálfsögðu, og farið verður með lest til baka til Bologna kl. 05:23 aðfararnótt laugardags. Heimkoma er áætluð kl. 06:37 og verður kappinn því lagstur til hvílu fyrir kl.07:00 á laugardagsmorgni. Þetta verður semsagt heljarinnar ferðalag og súkkulaði og djammdagur á morgun. Ferðafélagar kappans verða bretar í þetta skiptið og því stefnir þetta í verulega áhugavert ferðalag. Í gærkvöld kynntist kappinn usa-búum sem eru að living it out here in bólónía, just doing crazy things all the time etc.etc. Þetta er reyndar moldríkt lið og auk þess starfa þessir gæjar fyrir Ducati (þetta er by the way hjólið sem ég ætla mér að koma á til Íslands með Norrænu) þannig að kappinn var nú ekki lengi að fá skoðunarferð um verksmiðjuna sem er hérna rétt fyrir utan Bologna.

Nough said í bili, næsta færsla verður uppfull af myndum þar sem kappinn er að háma í sig súkkulaði a la Siggi Hall.

over and out
|
10.20.2004
Góðan daginn gott fólk og afsakið biðina á uppfærslu.
Systir kappans var á svæðinu í nokkra daga og beindist öll athygli kappans því að henni og skemmtun hennar. Það sem stendur upp úr eftir dvöl hennar er maturinn, loksins loksins loksins fékk kappinn sömu tilfinningu og heima á íslandi, hann var eigi svangur lengur að lokinni máltíð! Þetta er unaðsleg tilfinning, að vera saddur. Kappinn telur því ástæðu þreytu, slappleika og sljóleika síðustu vikna því aðeins vera matarskort. Ekki það að hann líði mikið fyrir matarskortinn heldur hefur kappinn ekki verið samur við sig. Hann komst þó heldur betur í stuð um helgina og fram til dagsins í dag hefur hann haldið sama striki. Áætlað er að halda uppteknum hætti. Ýmis vandamál fylgja þó þessari venju og ber þar hæst að nefna eldamennsku en kappinn er meira fyrir að borða mat en að matreiða hann. Neyðin kennir þó naktri konu að spinna og þar sem kappinn er nú orðinn fullklæddur fyrir veturinn, þökk sé nánustu vandamönnum heima á Fróni, þá bíður hans ekkert nema pönnur, pottar, ólífuolía og fleira slíkt skemmtilegt. Kappinn hélt í gær á fornar slóðir, kíkti í ræktina með systurinni. Hann fór nú aðeins til að versla eitt stk. líkamsræktarkort og endaði það með því að kappinn þurfti að fylla út u.þ.b. 7 eyðublöð til að fá að fylla út önnur 4 sem síðan veittu aðgang að korti sem þurfti að fylla út innan við hálftíma og með stórum stöfum og síðan þurfti að teikna mynd af sér og mátti hún ekki fara út fyrir línurnar sem hennir voru ætlaðar og þurfti hún að vera nákvæmlega í 1600x1400 upplausn með 2.3 milljón litum og síðan þurfti að fylla út önnur visa eyðublöð og svo... þetta tók svona u.þ.b. eina klst að fá eitt skitið kort sem síðan er með mynd af kappanum þar sem hann lítur út eins og draugurinn kasper í samblandi við múmínsnáðann.
Fataskápurinn var svo að segja endurnýjaður, eða kannski maður ætti frekar að segja fatahengið því þetta er nottla enginn skápur sem kappinn verslaði sér. Nú hefur kappinn komið sér fyrir í nýja herberginu og munar miklu um plássið. Hérna getur kappinn m.a.s. teygt úr sér á morgnana! Gestir eru því meira en velkomnir nú eftir að herbergið hefur stækkað, kappinn m.a.s. búinn að versla aukadýnu og rúmföt þannig að nú flokkast íbúð kappans nánast undir 2 stjörnu hótel en ekki bara svefnpokapláss.
Næstu dagar verða notaðir til að lesa stíft og áætlað er að hefja lestur strax í dag, þ.e.a.s. eftir rækt, 1 tíma kl.4-5 og svo mat á milli 7 og 9. Þannig að á milli 10 - 12 verður sko LESIÐ!!! Myndir frá heimsókn systur kappans verða settar inn seinna partinn í dag, e.t.v. á milli 10 og 12 í kvöld á ítölskum tíma þegar kappinn á að vera að læra.....

over and out
|
10.13.2004
Jæja góðir hálsar. Þetta verður frekar mikið stutt í þetta skiptið. Franska stelpan sem var hérna er farin, sem er gott. Hún kom hérna í sept.lok og ætlaði bara að vera nokkra daga en endaði á að vera einhverjar vikur. Allir fegnir að losna við flykkið. Síðustu dagar hafa verið hefðbundnir svo að segja, skóli og svefn, skóli og svefn, skóli og svefn. Kappanum barst e-mail frá Sæmdarmundanum. Sæmi, næsta bréf verður sko ekki eitthvað feik stílað sérstaklega á mig og svo eitthvað sem þú sendir öllum öðrum líka, það er eins gott að maður fái almennilegt meil með einhverju djúsí stöffi!!! Í kvöld ætlar kappinn að kynnast brasilískri menniiningingingu þar sem haldin verður kjötkveðjuhátíð á einhverjum staðnum hérna. Síðan kemur systir kappans í vikulok og verið er að undirbúa komu hennar hingað.

Nough said,
over and out
|
10.09.2004
Mikilvæg tilkynning!!!
Gott fólk, það hlaut að koma að því. Svik, undirferli, misneyting, launing, ráðabrugg og svikamilla kappans hefur loksins skilað árangri. Þreföldum svefnrýmis og athafnasvæðis kappans er staðreynd sem ekki verður hnekkt!!! Kappinn hefur fengið nýtt herbergi hérna í Bologna. Alltaf í sömu íbúð en þetta herbergi er MÁLIÐ!!! Alger snilld. Þannig er nú mál með vexti að einn félaga kappans hér á landi vinnur í Róm og kemur aðeins yfir helgar hingað. Hann ákvað því að láta herbergið sitt og vantaði því einhvern til að leigja það. Kappinn kom með smá tillögu sem var á þá leið að hann fengi herberið ( hverjum hefði getað dottið það í hug? ). Tillagan var samþykkt með det samme, punto e basta ( ekki pasta eins og íslendingar virðast halda ). Því er kappaunnendum frjálst að mæta hingað á meginlandið og gista í nýju herbergi kappans, sem er mun boðlegra heldur en hið fyrra. Kappinn yfirgefur hið gamla herbergi með vissum söknuði, enda búinn að fjárfesta í meiriháttar IKEA-koju. Með kojunni fylgdi meiriháttar ískur í hvert skipti sem kappinn hreyfði sig eitthvað smá en það fylgdi víst gratuito eða frítt með eins og það útleggst víst á íslensku. Annars var kappinn ofuröflugur í gær, fór í ræktina og fótbolta og dó svo úr þreytu heima í sturtu. Í dag hélt kappinn aftur í knattspyrnu ásamt erasmusum og var að gera góða hluti að vanda, setti ein 4 mörk í öllum regnbogans litum. ( Fyrir vantrúaða þá þýðir ekkert að vera að bauna á kappann þar sem þeir hinir sömu geta aldrei komið til með að fá þetta staðfest og því verður einfaldlega að treysta heiðarleika kappans - öll skítakomment verða þurrkuð út ).

Kappinn varð vitni að rifrildi hérna heima í gær. Þannig er mál með vexti að það eru enn ógreiddir reikningar hérna frá því fyrr í sumar, gas+rafmagn+internet o.fl. Daniele, a.k.a. Jeff Goldblum skv. Max, neitaði að greiða einhvern hluta en Marco, mafíósinn frá Sikiley og hæstráðandi á þessu heimili, var honum alls ekki sammála. Það fór allt í háaloft hérna. Kappinn vissi ekki sitt rjúkandi ráð þannig að hann ákvað að það væri best bara að elda pasta oní liðið til að róa það. Það virkaði svona þrusuvel og sættust menn yfir góðri pastamáltíð. Þarna sá kappinn reyndar að sikileyingurinn er hinn mjúki karlmaður sem tekur hluti mjög svo inn á sig, m.ö.o. hann fór að væla greyið skinnið... Anyways...

Í kvöld á að elda með erasmusum heima hjá einum slíkum, ekki kappanum þó, og síðan horfa á Ítalía-Slóvenía.

Jæja, nough said!!

Over and out
|
10.05.2004
Jæja gott fólk. Kappinn er ekki dauður úr öllum æðum, enn... Kappinn biður aðdáendur sína afsökunar á slakri frammistöðu við skriftir en mikið hefur verið að gera síðustu dagana. SKólinn er byrjaður fyrir alvöru og kappinn hefur verið að hlaupa úr einum tíma í annan til að sjá hvernig tímarnir eru og svona. Þetta er merkilegur andskoti hérna. Kennslustundin byrjar skv. stundaskrá t.d. kl. 10:00 en kennarinn er ekkert að stressa sig og mætir aldrei fyrr en í fyrsta lagi kl. 10:20. Svo er kennt í c.a. 75 mín og allt búið. Megastuð. Erasmus nemar hérna eru að fá þvílíkan afslátt af lestri. Sem dæmi er hægt að taka stjórnskipunarrétt ( n.b. kappinn hefur lokið þeim kúrsi heima en vildi forvitnast hvernig þetta væri hérna þar sem ESB veður yfir allt og alla og því e.t.v. aðeins öðruvísi fag ). Nú jæja, kappinn gengur upp að hæstvirtum prófessor, sem var örugglega einn af þeim sem skrifaði ítölsku sts árið 1948, og spyr hann hvernig þessu sé farið með Erasmus nema, hvort sömu bækur séu fyrir þá, mætingar í tíma og fleira í þeim dúr. Prófessorinn spyr þá hvort kappinn&co 2004 hafi lokið viðkomandi kúrs í heimalandi sínu. Jákvæð svör bárust frá öllum aðilum. Þá segir kennarinn liðinu að það þurfi þá bara að lesa 4 kafla til prófs og ekkert annað ( bókin er allt í allt 26 kaflar!!! ) Skemmst er frá því að segja að kappinn ákvað að sitja þann kúrs áfram. Síðan var haldið í diritto commerciale. Skemmtilegur kall að kenna það fag. Fyrsta spurning prófessorsins var hvort kappinn hefði lært viðkomandi fag heima, kappinn taldi það nú. Þá ætlaði kallinn bara að meta allt sem kappinn hefði lært heima og kappinn þyrfti því ekki einusinni að taka prófið! Kappanum fannst þetta nú heldur langt gengið og ákvað að sitja ekki fleiri tíma þar, enda var um kröfurétt að ræða ( á ítölsku í þokkabót). Nough said... Annars er stundatafla kappans frekar ljúf núna eftir leiðréttingar síðustu daga. Fim og fös eru t.d. alger snilld. Á fim. byrjar skólinn ekki hjá kappanum fyrr en um kl. 16:00, eftir því hvenær kennarinn drattast inn í stofuna, og á fös er tími frá 9 - 11. Hinir dagar vikunnar eru frá 10 til 16 eða 17. Frekar gott bara.

Kappinn skrapp til Flórens síðustu helgi. Það var ferð til fjár, sérstaklega þar sem kappinn&co 2004 þurftu ekki að borga lestina á leiðinni til baka. Þar sem liðið var orðið allt of seint var enginn tími til að kaupa lestarmiða og því tekin sú ákvörðun að hoppa um borð og reyna að finna lestarvörð til að greiða. Enginn lestarvörður kom að rukka og menn frekar sáttir við það. Annars var þetta fyrsta ferð kappans til Flórens. Þetta er alveg mögnuð borg, geggjað flott og líka alveg ógeðslega mikið af túrhestum þarna. Ekki að það sé eitthvað spes að hafa túrista allt í kringum sig. Kappinn datt inn á mjög svo international markað sem er haldin þarna einu sinni á ári eða eitthvað slíkt. Þessi markaður var alger snilld, svo mikil að kappinn fjárfesti í nákvæmlega 4,5 kg. af salame (nákvæmar mælingar áttu sér stað á svona vigt sem maður greiðir fyrir að vigta sig á almannafæri) fyrir aðeins 10 euros. Já gott fólk, hver segir svo að það sé ekki gott að vera í ESB!

Rúmið hjá kappanum er ennþá laust ef einhver vill kíkja yfir í heimsókn. Verður það líklegast laust fram á sunnudagsmorgunn.

Kappinn mælist til þess að fólk kíki inn á síðuna hennar gorku, a.k.a. Gunna, þar sem meiriháttar uppfærsla hefur átt sér stað.

Meira var það ekki í bili

over and out
|