Gunnsan er að gera góða hluti í Ameríkunni. Hún og háskólaliðið hennar, Notre Dame, eru komnar í úrslit í fótboltanum. Geggjaður árangur. Fyrir áhugasama þá geta þeir skoðað þetta
hérna. Þetta er pottþétt í fyrsta skipti sem íslendingur kemst í úrslit í NCAA keppninni. Þetta er ekkert smá keppni líka, allir háskólar í USA taka þátt í þessu, í mismunandi deildum auðvitað. ND er í eftstu deild og því má segja að þær séu með besta liðið í landinu, eða allavega annað af tveimur. Vic sá sér fært að fara á leikinn, gerði gott betur og tók með sér íslenska fánann. Spurning hvort hann hafi tekið myndavélina með og smellt af sér nokkrum myndum til að sanna þetta.
Í dag var, og er reyndar enn, ömurlegt veður. Algert úrhelli. Kappinn tók sig því til og ákvað að lesa í allan dag. Tók réttarsögu ítala og refsaði henni. Sami pakki á morgun...