Kvöldmatarboðið heppnaðist svona líka þrusu vel. Allir voru mjög ánægðir með matseld kappans. Eldaði Bæjonn skinku og hangikjet. Í forrétt var lax með ristuðu brauði og ég bjó til kokteil sósu og sagði þeim að setja á brauðið og laxinn oná, veit ekki hvort þetta sé gert í raun og veru en ég sagði þeim bara að þetta væri alveg ekta týpískur íslenskur réttur. Þau nottla vita ekki betur þannig að... Svo var boðið líka upp á brennsa, það rann ekkert voðalega vel oní liðið, tók nokkrar góðar myndir af því sem verða settar hérna inn síðar við tækifæri.
Fyrir harðkjarna kappaaðdáendur þá setti ég inn myndir af heimsókn foreldra minna hingað, þær eru til vinstri á síðunni undir frakklandsmynda-linknum.
Tímunum í skólnum lýkur formlega á miðvikudaginn, reyndar á þri þar sem það er frí á miðvikudag þar sem einhver heilagur maður lést þann dag fyrir þúsund árum eða svo. Framundan er bara lestur og aftur lestur hjá mér, reyndar keypti ég mér miða á Bologna - Juventus. Jafnvel að maður taki myndavélina með og fái Zlatan til að tjá sig um slúðrið um hann og
Tinnu.
Óðum styttist í heimkomu kappans, samlandar hans á Fróni mega fara að vara sig. Ég vil biðja einhvern um að hita upp gamla sætið mitt á Berginu, Daði væri ágætur í það svo sem, erum með svipað stóran rass, hann þó öllu heldur stærri. Heimkoman er 15 des, ef flugið mitt verður enn til staðar með Expressinu þ.e.a.s.
Over and out