Það er nákvæmlega ekkert í gangi hérna þessa dagana. Reyndar er alltaf einhversstaðar party og svona, manni nottla alltaf boðið, en þar sem kappinn hefur nú ákveðið að taka þetta föstum tökum, þ.e. námið, þá segir hann nei við fíkniefnadjöfulinn og frænda hans sem boðar áfengisneyslu. Lært var í allan dag og síðan tekin smá kría. Er núna bara að fara að borða kvöldmat með stelpunni sem býr hérna. Hún er alger steik þessi pía, átti að fara í próf í morgun en gat ekki drullast til að vakna fyrir það! Ég hélt að hún væri að grínast með þetta en svo var eigi. Þá spurði ég hana " e allora? " ( og hvað? ) Þá sagðist hún bara ætla að taka þetta í janúar... Svona er þetta víst hérna, það skiptir svosem ekki máli hvort maður nái prófi eða ekki, það er alltaf hægt að taka það aftur sé maður ekki sáttur við frammistöðu sína. Jújú, það er svosem ekki hægt að segja að það sé eitthvað stress í gangi hérna...