þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
3.28.2007
Morning
Sælt veri fólkið (örugglega ekki margir sem lesa þetta). Komst í ræktina í gær í fyrsta sinn síðan drepsóttin mikla herjaði á mig og einnig eftir að puttinn á mér kom úr ígerð. Tók þokkalega vel á því, hlóð fallbyssurnar vel og rækilega enda engar túttubyssur hér á ferð. Fyrir þá sem hafa áhuga á svoleiðis er þeim bent á að snúa sér að Sekknum og matarmyndum hans því til sönnunar.

Annars verð ég að lýsa yfir ánægju minni með innflutningsgjöf Sekkjarins og Stóra-Hunds, bróður hans. Einkar vel til fundin gjöf sem á eftir að halda manni góðri skemmtun í spilaranum. Í ljósi þessarar innflutningsgjafar þá á þetta myndband hérna sennilega vel við (þeir sem eru kunnugir gjöfinn skilja þetta væntanlega tenginginu við þetta - þið hin væntanlega ekki) http://youtube.com/watch?v=fbGkxcY7YFU (kann s.s. ekki að útbúa hyperlink á þetta...)

Annars er Sæmi maður marsmánaðar og sennilega fleiri mánaða ef fram heldur sem horfir.
|
Comments: Skrifa ummæli