Ég kann ekki að laga þetta template kjaftæði sem er í gangi hérna. Stafirnir á linkunum eru í fokki og svo er eitthvað megabil frá titli niður að texta. Fokk it, mér er slétt sama. Ef þið kunnið að laga þetta þá megiði endilega koma með ábendingar. Fór í leikhús í gær á Killer Joe, frekar kúl leikrit. Það fór samt soldið fyrir brjóstið á manni þegar kjúklingalæri var notað til vafasamra athafna en að öðru leyti var þetta bara mjög gaman.
Annað sem er í fokki er I-podinn minn. Get ekki kveikt á honum sem er mjög bagalegt í ljósi þess að ég var að hlaða inn á hann heilum hellingi af lögum.
Þriðja sem er í gjörsamlegu fokki er puttinn á mér. Tókst að hvíla mig svo gríðarlega vel síðustu helgi að ég fann ekki einu sinni þegar puttinn á mér náði suðumarki á ofninum við rúmmið. Mjög spes að vakna með fjall af vökva undir húðinni á puttanum. Síðan var hægt að kreista þetta þannig að bunan stóð út og náði marga metra hæð. Líkamsvessagosbrunnur. Mjög eðlilegt. Ég býst við því að það hafi líka verið mjög eðlilegt að fá ígerð í þetta eftir þetta trix. Fór upp á heilsgæslu og spítala með puttann á mér og er kominn með megaumbúðir í aðra og pensilín í hinni.
Annars hef ég fengið gríðarleg viðbrögð við endurkomu Kappans í netheima, fólk almennt ánægt með þetta framtak. Það virðist þó vera þannig að þegar ég fer til Bologna þá hefjast skrif hérna aftur. Fer út 3. april nk. og kem aftur 10. Páskarnir verða s.s. haldnir mjög heilagir á Ítalíu.
Heyrði aðeins í Sekknum í morgun, hann var víst að klára prófin úti og tók nett á því. Spurning um að feta í fótspor hans og gera sig líklegan til afreka um helgina? Sjáum til með það.
Djöfull bíð ég spenntur eftir að sjá hvort það komi einhver komment hérna! enúúú....