Sælt veri fólkið. Hér á eftir fer eilítil ferðasaga sem fjallar um súkkulaðifestivalið. Upphaflega útgáfan "vistaðist" ekki eins og til stóð og því fylgir hér styttri útgáfa.
"
Það var einn sólríkan dag í októbermánuði 2004 að kappinn&Co ákváðu að halda til Perugia. Förinni var þangað heitið þar sem haldin var árleg súkkulaðihátíð þar í bæ á þessum tíma árs. Lagt var af stað snemma morguns með lest. Komið var til Perugia um nónbil og strax hófust kappinn&Co að hakka í sig súkkulaði sem var að finna ókeypis hér og þar. Hátíðin fer fram utandyra að mestu nema súkkulaðiskúlptúrar sem gerðir eru innandyra, enda myndu þeir annars bráðna utandyra í hitanum sem enn er hér, eða var. Miðbærinn er allur þakinn tjöldum og þar er að finna flestar, ef ekki allar, tegundir súkkulaðis sem hægt er að ímynda sér. Kappinn fann m.a.s. súkkulaði með bjórbragði! (Það var ógeðslega vont by the way). Eftir að hafa borðað súkkulaði og fleira góðgæti þá var haldið til Firenze, eða Flórens eins og Frónbúar kjósa að kalla borgina. Þar var fundinn lítill og snotur staður til að borða á. Síðan var haldið á aðaltorgið þar sem fundinn var flottur bar, drykkir pantaðir fyrir offjár og sorglegur söngvari var með hljómborð og söng gamla slagara. Síðan var tími til kominn fyrir ferðalangana að halda heim á leið eftir mikið og skemmtilegt ævintýri. Og allir lifðu vel og lengi upp frá þessu"...
Þetta var s.s. styttri útgáfan. Vilji fólk fá lengri útgáfu og skemmtilegri er hinum sömu bent á að hringja í kappann. Blóm og kransar afþakkaðir.
Kappinn er í miklum ferðahug þessa dagana. Þetta hefur leitt til þess að ákveðið hefur verið að kappinn&Co (kappinn&Co er samheiti fyrir kappann og þá sem fara með honum eitthvert - ekki endilega sama fólkið öllum stundum) fari til Frakklands þessa helgi. Stefnt er á að heimsækja uppáþrengjandi andfýlukonuna sem var alltof lengi hjá okkur fyrir svolitlu síðan. Brottför er áætluð um hádegisbil á morgun og endurkoma kappans&Co til Bologna verður ekki fyrr en á mánudagskvöld þar sem frí er í öllum skólum hér á landi þann sama dag, einhver dauðahátíð eða eitthvað slíkt í gangi.
Daniele, a.k.a. Jeff Goldblum eins og maxternator komst að, á afmæli á morgun. Stefnt er að halda upp á það með pompi og prakt að sjálfsögðu, í Frakklandi, og farið verður út að borða.
Kappinn kveður því sig og sína fram að mánudegi og biður aðdáendur sína vel að lifa.
Góðar stundir