Gott fólk, það hlaut að koma að því. Svik, undirferli, misneyting, launing, ráðabrugg og svikamilla kappans hefur loksins skilað árangri. Þreföldum svefnrýmis og athafnasvæðis kappans er staðreynd sem ekki verður hnekkt!!! Kappinn hefur fengið nýtt herbergi hérna í Bologna. Alltaf í sömu íbúð en þetta herbergi er MÁLIÐ!!! Alger snilld. Þannig er nú mál með vexti að einn félaga kappans hér á landi vinnur í Róm og kemur aðeins yfir helgar hingað. Hann ákvað því að láta herbergið sitt og vantaði því einhvern til að leigja það. Kappinn kom með smá tillögu sem var á þá leið að hann fengi herberið ( hverjum hefði getað dottið það í hug? ). Tillagan var samþykkt með det samme, punto e basta ( ekki pasta eins og íslendingar virðast halda ). Því er kappaunnendum frjálst að mæta hingað á meginlandið og gista í nýju herbergi kappans, sem er mun boðlegra heldur en hið fyrra. Kappinn yfirgefur hið gamla herbergi með vissum söknuði, enda búinn að fjárfesta í meiriháttar IKEA-koju. Með kojunni fylgdi meiriháttar ískur í hvert skipti sem kappinn hreyfði sig eitthvað smá en það fylgdi víst gratuito eða frítt með eins og það útleggst víst á íslensku. Annars var kappinn ofuröflugur í gær, fór í ræktina og fótbolta og dó svo úr þreytu heima í sturtu. Í dag hélt kappinn aftur í knattspyrnu ásamt erasmusum og var að gera góða hluti að vanda, setti ein 4 mörk í öllum regnbogans litum. ( Fyrir vantrúaða þá þýðir ekkert að vera að bauna á kappann þar sem þeir hinir sömu geta aldrei komið til með að fá þetta staðfest og því verður einfaldlega að treysta heiðarleika kappans - öll skítakomment verða þurrkuð út ).
Kappinn varð vitni að rifrildi hérna heima í gær. Þannig er mál með vexti að það eru enn ógreiddir reikningar hérna frá því fyrr í sumar, gas+rafmagn+internet o.fl. Daniele, a.k.a. Jeff Goldblum skv. Max, neitaði að greiða einhvern hluta en Marco, mafíósinn frá Sikiley og hæstráðandi á þessu heimili, var honum alls ekki sammála. Það fór allt í háaloft hérna. Kappinn vissi ekki sitt rjúkandi ráð þannig að hann ákvað að það væri best bara að elda pasta oní liðið til að róa það. Það virkaði svona þrusuvel og sættust menn yfir góðri pastamáltíð. Þarna sá kappinn reyndar að sikileyingurinn er hinn mjúki karlmaður sem tekur hluti mjög svo inn á sig, m.ö.o. hann fór að væla greyið skinnið... Anyways...
Í kvöld á að elda með erasmusum heima hjá einum slíkum, ekki kappanum þó, og síðan horfa á Ítalía-Slóvenía.
Jæja, nough said!!
Over and out