Man fólk eftir dánarfregnum og jarðarförum? Síðustu vikuna hefur verið hægt að hafa veðurfregnir og jarðarfarir í sama dagskrárliðnum því veðrið hér á þessu skítaskeri er að gera Kappan vægast sagt brjálaðan, já reiðan! Gott fólk, við erum að tala um ömurlegasta sumarveður ever. Rigning og rok í heila viku takk fyrir, meiriháttar!
Síðasta fimmtudag prófaði Kappinn nýja íþrótt - áttaði mig þó ekki á því fyrr en eftir að hafa prófað þetta. Kappinn tók sig til og fór út að hlaupa um Grafarvoginn sjálfann. Það er svosem ekkert merkilegt við að fara út að hlaupa en hins vegar reiknast Kappanum til að það hafi verið um það bil gróflega áætlað svona cirka 230 metrar á sekúndu og 45mm jafnfallin úrkoma. Slíkt veðurfar gerir það að verkum að þegar menn eru úti að hlaupa þá er það svona svipað því að vera á biluðu hlaupabretti sem skiptir sjálfkrafa úr level-i 5 í level 25, setur allt í botn og dregur úr öllu - viðkomandi gjörsamlega að óvörum. Mjög spennandi sport sem hægt er að stunda hér á landi eingöngu.
Kappinn lagði síðan í golf í gær í versta veðri íslandssögunnar. Þessi hringur verður seint til afreka talinn, fyrir utan kannski að sjálfur Kappinn gafst upp eftir 7 holur. Þá var höggafjöldinn á góðri leið með að slá öll met sem Sekkurinn hefur sett. Nálgaðist þó ekki B.GUMM metið sem sett var á Leirunni með eftirminnilegum hætti í fyrrasumar.
Golf í kvöld og síðan helgin!
Haldið því raunverulegu,
kv.
Kappinn