..er ágætasta skemmtun. Fór á einleikinn sl. föstudag. Þetta er mjög fyndið leikrit. Mér fannst það samt virka betur sem getnaðarvörn. Það var líka virkilega fyndið þegar leikarinn, Bjarni Haukur held ég að hann heiti, gleymdi sér eitt andartak og fór að hlæja að einum áhorfandanum þar sem sá hafði hlegið þvílíkum hrossahlátri mun hærra en allir aðrir.
Annars hefur Kappinn haft spurnir af miðum á Josh Groban tónleikana sem eru 16. maí n.k. Áhugasamir hafi samband við Kappann með hugboðum eða símleiðis.