Já gott fólk, á morgun mun Kappinn halda alla leið til Bandaríkja Norður Ameríku. Flugið hefst 10:00 að staðartíma og er haldið frá Bologna til Charles De Gaulle flugvallar í París. Þaðan verður svo haldið til Chicago þar sem Frk. Gorgorian mun taka á móti Kappanum í downtown Chicago! Ég verð víst að hanga með henni og foreldrum hennar eitthvað frameftir vikunni þarna, ætli maður geti ekki pínt sig í þetta fyrst það er nú eitthvað voðalega spennandi að gerast þarna. Gunnsan kallar þetta graduation eða eitthvað slíkt.
Annars var helgin mín frekar róleg. Skrapp til Mestre að hitta frænku mína og ofvirklingana hennar 2 ásamt því að eiginmaður hennar var á staðnum. Verið var að ferma yngri ofvirklinginn, eða svona næstum því. Þetta var fyrrihluti fermingarinnar. Þetta var alveg ágætis messa, nútímalegari en ég mundi eftir, það var m.a.s. spilað á gítar og fólk klappaði í takt við sum lögin! Alveg rífandi stemmari á tímabili svo ekki sé nú meira sagt. Síðan var haldið heim til þeirra þar sem litli ofvirklingurinn fékk alla pakkana sína ( sem var nottla ekkert tilgangurinn með öllu saman ) og þaðan var svo haldið eftir stutt stop á veitingastað þar sem allir megrunarkúrar heimsins fengu ekki inngöngu. Þetta var nú samt mjög heilsusamlegt allt saman...fiskur og aftur fisku, ýmist hrár eða djúpsteiktur. Nú er bara málið að taka 4 fitubennslutöflur, 4 ripped fuel, lifa bara á soyamjólk og próteinsjeikum í dag!
over and out