var nú frekar létt verð ég að segja. E.t.v. spilaði þar inn í að prófessorinn og aðstoðarmaður hennar höfðu mikinn áhuga á Íslandi og vissu að það var einn hringvegur í kringum landið. Auðvitað nýtti maður sér áhuga þeirra og meirihluti prófsins fór í að koma sér í mjúkinn hjá þeim og reyna að heilla þau af landi og þjóð. Það tókst svosem alveg ágætlega. Síðan var Kappinn spurður nokkurra frekar basic spurninga og eftir það var tekist í hendur og öll dýrin í skóginum vinir. Já gott fólk, Kappinn s.s. stóðst prófraun þessa líkt og aðrar hér í landi, hvort sem það er Íslandi að þakka eða ekki!