Jæja jæja. Sum ykkar geta eflaust verið feginn því að maður er kominn aftur hingað, ég er hinsvegar ekkert alltof spenntur fyrir því sjálfur, þetta var svo hrikalega gaman þarna í USA-inu. Reyndar var þetta miklu meira en gaman verð ég að segja, þetta var alveg geggjað gaman, vil þakka tengdó fyrir frábæran tíma og uppihald!
Þetta byrjaði nottla alltsaman í Chicago þar sem við Gunnsan gistum á The Drake Hotel, alveg geggjað flott hótel, eflaust eitt það flottasta sem ég hef komið á ef frá er skilið The Rock Hotel á Gíbraltar með pabba, mömmu og Martinu (og fleirum reyndar líka) fyrir nokkrum árum. Við allavega skemmtum okkur svakalega vel í Chicago, Gunna fann þessa líka geggjað flottu drakt til að fara að hitta Gogga Bush yfir léttum hádegisverði á föstudaginn. Það var s.s. leitað og leitað að drakt í flestöllum fatabúðum sem er að finna á Magnificent Mile í Chicago, en það er aðalverslunargatan þar, en eftir mjög svo umfangsmikla og harða leit kom í ljós að draktin sem við fundum í fyrstu búðinni var sú flottasta. Konurnar sem vinna í búðinni voru svona líka yfir sig ánægðar með Gunnu í þessari drakt, hrósuðu henni í hástert fyrir hvað hún leit vel út og allt það og hvað Ísland væri spennandi o.s.frv. Þetta leiddi svo á endanum til þess að draktin var auðvitað versluð og allir voru ánægðir.
Næsta dag þurfti Gunna að fara til að hitta Bush og einhvern Senator þarna í Washington þannig að ég tók bara á móti tengdó einn og yfirgefinn. Á milli þess sem Gunna skrapp í flugvélatúr og tengdó komu þá tókst mér auðvitað að ná mér í einhverja helv...pest/flensu og var því drulluslappur, móttökurnar voru því ekki alveg upp á hið besta og kampavínið því geymt til betri tíma, á það reyndar enn....En ég skemmti mér allvega frábærlega með hinni fjölskyldunni minni og ákveðið var að nú yrði sko tekið upp á því að kalla tengdó, mömmu og pabba alveg eins og tíðkast víst í ameríkunni!
Þeir sem hafa mikinn áhuga á myndasmíð kappans geta kíkt á nokkrar myndir úr ferðinni sem ég setti inn í dag, á milli blunda eftir mjög svo langt og leiðinlegt flug. Gunna er samt með miklu betri myndir og skemmtilegri þannig að ég fæ svo hjá henni og set hérna inn síðar.
Útskriftin var alveg kapítuli út af fyrir sig. Eftir mjög svo leiðinlegan 1 klukkutíma og 45 mínútur tóku loksins við heilar 10 mín c.a. af fjöri þar sem deildirnar hentu upp höttunum sínum og voru með allskonar vitleysu, menn tolleraðir þarna á trébekkjum og fleira sniðugt. Gunna og vinkonur hennar gerðu alveg svakalega wild hlut, þær höfðu nebbla klippt niður í búta hvít blöð og hentu upp í loftið! Það var ekkert smá wild hjá þeim, it was like so awsome...Gunna var allavega mjög kát með alltsaman og gaman að sjá hvað hún var ánægð með þetta. Það eina sem mér fannst soldið vanta í þetta prógramm alltsaman var að hitta vini hennar en segja má að eina fólkið sem við hittum hafi verið fólk á campus sem henni líkar ekkert við! Veit ekki hvað það á að þýða. Á kvöldin voru allir svo úrvinda úr þreytu að við nenntum ekki að fara út og djamma þannig að vinir hennar Gunnu verða víst að bíða betri tíma með að hitta Kappann sjálfan.
Sjálfur er ég nú alveg úrvinda úr þreytu eftir flugið þannig að ég held bara í háttinn og kveð í bili...
over and out