Skítarigning og rok hérna núna. Mjög svo slappt veður og mjög svo til þess fallið að maður hangi bara inni að læra. Kíkti út í gær, þá meina ég út. Kappinn og félagar hans héngu (hvernig er þt. sagnarinnar að hanga skrifuð?) úti á Piazza Santo Stefano til um klukkan 2. Síðan var ákveðið að halda á skemmtistað sem heitir Caracol en það var lítið fjör þar þannig að Kappinn tók svokallað beil á þetta.
Á laugardaginn var haldið í matarboð hjá Audrey og sambýlingum hennar. Þetta er svissnesk stelpa og buðu þær vinkonunar þarna upp á Fondu...hef ekki hugmynd um hvernig þetta er skrifað en þetta samanstendur af potti, bráðnum osti ofan í pottinum, brauði og svo járnstöngum sem stungið er í brauðið og svo brauðið ofan í ostinn sem er í pottinum, nokkuð skýrt ekki satt? Annars getiði skoðað þetta
hérna. Myndir eru komnar inn á nýjar myndir linkinn hérna til hliðar. Annars ekkert nýtt í þessu.....