þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
4.05.2005
Loksins....loksins...
gætu sum ykkar verið að hugsa aðdáendur góðir! Þetta er ekki draumur gott fólk, þetta er í raun og veru ný færsla á bloggi Kappans!!! Kappinn fékk miklar kvartanir vegna blogg-slappelsis og hefur því tekið sig á og kemur hér með nýjar færslu.

Ef til vill er best að fara yfir helstu atburði í lífi Kappans þessar síðustu vikur.
Í langfyrsta sæta er auðvitað fæðing Ragnheiðar Völu Höskuldsdóttur. Innilega mikið til hamingju Skuldi elsku snúðurinn okkar allra. Vilji fólk skoða myndir af þessari elsku má finna þær hér.

Í öðru sæti kemur án efa, og er við það að nálgast fæðingu skuldadóttur, Napoliferðin. Myndir verða settar inn á nýjar myndir linkinn nú um leið og þessi færsla tekur enda. Það gerðist svosem ekkert últramerkilegt þarna en það sem er langminnisstæðast er páskadagsmaturinn með stórfjölskyldunni. Við fórum heim til afa Daniele, ekki nema næstum hundrað ára, og borðuðum þar. Þegar fólk sameinast í suðurhluta Ítalíu, og þá ekki síst í Napoli, þá er sko tekið til matar. Án efa hefði Danajarlinn tekið sig vel út í matarboðinu. Boðið var upp á endalausan mat og svo þegar hann var búinn þá kom ennþá meira af endalausu góðgæti, kökur og meiri matur og svo kökur og svo meiri matur. Þegar Kappinn var aðframkominn af þreytu við að tyggja mat og nota magann til meltingar þá var hann kallaður til og fenginn til að dreifa páskaeggjum. Við athöfnina var notaðu stóll og borð. Síðan teygði kappinn sig í hvert egg fyrir sig, sem öll voru uppi á skáp, og afhenti það eiganda þess. Ég skildi ekki alveg af hverju allir settu eggin sín upp á skáp og svo fengu sömu egg aftur til baka, ég hefði nú haldið að skemmtilegra væri að vita ekkert hvaða egg maður fengi svo að lokum. Það gæti nú samt stuðlað að því að menn færu að spara við páskaeggjakaupin og því bara leiðinlegt. Allavega...þarna voru egg af öllum stærðum og gerðum en Nóa Síríus eggið sló allt út, tala nú ekki um þegar það var mölvað í sundur með hamri og allt nammið hrundi út um allt. Þetta kom allavega vel út. Afinn meikaði ekki alveg að borða allan matinn og fór því fyrstur frá borðinu og að sofa. Ég mæli virkilega með því að fólk kíki á myndirnar af afa gamla því hann er eins og eitthvað djók gamli kallinn, virklega fyndinn gaur, sérstaklega útlitslega. Síðan getur vel verið að hann sé mjög fyndinn líka en þar sem hann talar einungis "Napólítönsku", þ.e. mállýsku, þá skildi ég ekki orð af því sem hann var að segja við mig, Daniele og frændur og frænkur þurftu að þýða fyrir mig allt saman. Ég held samt að gamla hafi verið slétt sama, sérstaklega í ljósi þess að hann hélt að ég væri Alberto frændi sem því miður komst ekki í þetta skiptið í matinn. Mjög gott matarboð sem sagt. Síðan var nottla farið soldið út á lífið og svona en þar sem Kappinn er í megaaðhaldi hjá actionmax þá var hann bara rólegi gæinn og var á bíl. Spurning um að Arnar Grant fái smá samkeppni eftir allt saman....

Í þriðja sæti er heimsókn Marco frænda míns hingað. Heimsóknin stóð fremur stutt, þ.e. í eina nótt en það var líka bara mjög gott. Þar sem viðkomandi frændi er gjörsamlega ofvirkur með meiru og hugsar bara um eitt, þ.e. að reyna að finna sér einhverja konu fyrir viðkomandi nótt og eiga við hana eins og 1.stk. mak þá var þetta meira en nóg. Við komuna hingað, og þá er ég að meina þegar ég opnaði útidyrahurðina þá var það fyrsta sem hann spurði mig (í íslenskri þýðingu)"Hvar eru stelpurnar sem þú ætlaðir að hringja í?" Ég sagði honum bara að chilla og að þær kæmu síðar. Síðan var haldið á diskótek hérna í miðbænum og þar fann hann sér einhverjar gellur til að dansa við. Tók þær nú ekki með heim en held að hann hafi fengið einhver símanúmer út á þetta allt saman. Þess ber að geta að hann tók ekki nema 3 vini sína með sér og þeir eru meira og minna allir með svipuð áhugamál og hann.

Í fjórða sæti er förin Kappans til Maranello, heimabær Ferrari. Fór á Ferrari safnið þarna, þetta var mjög gaman. Ég gerði mér hinsvegar grein fyrir því að ef Ferrari væri ekki í Maranello þá væri þessi bær svona soldið eins og Akranes væri ef ÍA væri ekki með fótboltalið. Það snýst allt um Ferrari þarna, svona c.a. 20 búðir á sömu götunni með Ferrari varning, og auðvitað er allur sá varningur original Ferrari varningur nema svo er til Original Ferrari store. Hmmmmm......Spurning um hver er orginal hérna? Set líka inn nokkrar myndir af Ferrari og Kappanum...

Síðan er ég alltaf að átta mig aftur og aftur á því að kennurum hérna er alveg sama um okkur Erasmus nema. Held að ég þurfi að fara að endurskilgreina þátttöku mína í tímum núna á næstunni....


Lengsta blogfærsla kappans tekur enda nákvæmlega hér
|
Comments: Skrifa ummæli