þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
4.14.2005
Gott fólk, Kappinn tilkynnir:

" Spinning er ekki bara fyrir kellingar og hinsegin fólk (þá á Kappinn aðallega við karlkyns hinsegin) ".

Kappinn skellti sér í ræktina fyrr í dag og að loknum mjög svo strembnum lyftingum þá tók við hálftíma spinning tími. Taka ber fram að þetta var fyrsti spinning tími Kappans...ever...Taka ber einnig fram að eftir c.a. 20 mínútur sprakk Kappinn á limminu og drapst - næstum.

Spinningið byrjaði voðalega rólega þannig að mér datt nú í hug að þyngja aðeins róðurinn (hjólið eða hvað maður á nú að nota - ég sneri allavega einhverju á hjólinu þannig að það varð erfiðara að pedala).... Djöfull hefði ég betur sleppt því maður, allt í einu fór spinning gaurinn að færa sig úr stellingum þannig að maður sat ekki lengur heldur stóð í lappirnar, ok - það var ekkert mál eða alveg þangað til að hann benti mér á að ýta rassinum aftur og ekki láta þungann liggja á höndunum...þarna voru c.a. 5 mín búnar...næsta korter fór í að færa sig upp og niður, áfram og aftur, láta þungann liggja á fótunum, ýta hælum niður en ekki nota tábergið til að pedala, pedala í takt við búmmbúmmtónlist dauðans, áframmmmmeðððððetttaaaa eins og sumir komast svo oft að orði....á þessum 15 mín fór ég að efast um getu mína í spinning og þegar 20 mín voru liðnar þá gafst ég hreinlega upp! Alger aumingjaskapur!!! Djöfuls....næst þá skal sko hjólið fá að finna til tevatnsins. Verst þótti mér samt að ekki var hægt að hrækja, var samt alvarlega að spá í að hreyta einum grænum og þykkum í spinninggaurinn sem hélt áfram að garga eitthvað í míkrófón eins og fífl...djöfulsins.....

Veðrið hefur tekið stakkaskiptum þannig að nú er hægt að "læra" utandyra, þá nottla ber að ofan eins og sönnum Kappa sæmir! Í gær fór ég í klippingu (fékk mér kött fyrir lengra komna). Var að spá í að fara til sígaunanna sem búa ekki við lestarteinana heldur undir þeim, það er mjög fyndið að keyra fram hjá þeim. Þetta er svona útisamfélag, allir hittast úti og gera allt saman úti, t.d. fara í klippingu utandyra. Sá þegar ég keyrði þarna framhjá fyrir nokkru síðar "klippikall" með venjuleg skæri að klippa mann sem var næstum sköllóttur...mjög spes...Endaði með því að ég fann mér Tony og Gay stað eins og heima og fór bara nokkuð sáttur þaðan. Engar v-hnakka hugmyndir eða neitt spes kom fram hjá klippikallinum heldur bara vatt hann sér í verkið og ég sáttur eftir á, gott mál.

Nú held ég að tími sé kominn á blund eftir "erfiði" dagsins...
|
Comments: Skrifa ummæli