þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
4.20.2005
Benedetto XVI
Jújú, auðvitað völdu kardinálarnir nafn Kappans á nýja páfann. Ég vil þakka þeim fjölmörgu aðdáendum mínum sem hafa sent mér skeyti, fax, sms eða e-mail. Þeir sem ekki gerðu það en hugsuðu til mín fá einnig þakkir. Þeir sem hugsuðu ekki til mín eru hér með minntir á mig og þeim þakkað fyrir hugsunina. Þeir sem ekki hugsa um mig eru eitthvað skrýtnir bara. Djöfull er ég alveg viss um samt að allir þeir sem hafa einhverntímann kynnst mér, t.d. grunnskólakennarar og fleiri slíkir, hafa hugsað til mín í gær! ÉG verð nú að viðurkenna að ég fann fyrir hlýjum straumum í gær. Já gott fólk, íslendingar nær og fjær, hugsuðu væntanlega flestir til mín í gær. Nú á eftir að slá metaðsókn á síðu Kappans þar sem heimsóknum kemur mjög líklega til með að fjölga allverulega...sérstaklega þegar fólk fer að setja samhengi á milli Benedetto XVI > Benedetto (Bensi) > Ekki Bensi Dans heldur hinn > Kappinn > Ítalskikappinn.blogspot.com! Pottþétt eftir að virka. Annars megiði alveg halda áfram að senda mér comment um ágæti nafns míns og míns eigins ágætis...
|
Comments: Skrifa ummæli