Svona til að byrja með þá mæli ég
ekki með að fólk sjái eftirtaldar kvikmyndir:
Nr.1 Catwoman
Nr.2 Hulk
Nr.3 Envy
Hinsvegar mæli ég með að fólk fari á Spalinn hérna vinstramegin í liknunum og kíki þar á Servator trailerinn sem er að finna á þeirri síðu.
Fór í ræktina í gær. Var að vinna í bicepnum sko, og í hlýrabol að sjálfsögðu svona í tilefni dagsins. Var hugsað til MAXtersins við það tilefni, hann fílar svoleiðis. Allavega, á meðan ég horfði á tvíhöfðatröllin í speglinum, svona eins og sönnum vaxtarræktarmanni sæmir, og stundi við hverja lyftuna á fætur annarri þá varð ég var við það. Já, það fór sko ekki á milli mála gott fólk. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa þessu, hvort maður sé ánægður eða ekki, hvort þetta sé gott eða ekki, hvort ég sé svona gay í útliti eða ekki...Jújú, það var ofurhommi dauðans að mæla mig út, ég sver það. Þetta var ekkert voðalega spes verð ég að segja, sérstaklega þar sem þetta var alveg öfgaaugljóst, svona eins og hann væri að tékka á hvort ég væri nú ekki til í eitthvað geim með honum seinnipartinn. Ekki það að það væri spes ef þetta hefði verið bara í laumi. Hitti punginn svo aftur í búningsklefanum, stóð nú ekki alveg á sama þá. Aðstæður þar voru reyndar soldið pínlegar. Kappinn er nebbla orðinn frekar hárprúður, miðað við það sem hann og hans eiga að venjast, og var hann því staddur á hárþurrkusvæðinu. Gengur síðan ofurhomminn ekki framhjá með þetta líka ógeðsglott...
Hárþurrkur
Hef sjaldan notað slík tæki á ævi minni. Eyddi heillöngum tíma í gær í að "blása" á mér hárið (því það var svo kalt úti og mamma mín segir að maður eigi ekki að fara út í kulda með blautt hár). Það er skemmst frá því að segja að Kappinn hætti að reyna að þurrka á sér hausinn vegna þess að ekkert gerðist, ekki með Gulla gay samt sko... Því má segja að eftirfarandi sé í stöðunni
A. Hárþurrkan var biluð
B. Hárþurrkan var ekki rétt stillt (fyrir ykkur sem ekki vitið þá eru hitastillingar)
C. Kappinn kann ekki að nota hárþurrku
D. Kappanum leið hommalega með hárþurrku í hendi og vildi ekki gefa röng skilaboð til vissra aðila sem voru nærstaddir
Nú eru bara 2 próf eftir, annarsvegar samanburðarstjórnskipunarréttur og hinsvegar alþjóðlegur einkamálaréttur að hætti ítala. Prófin klárast á fim og á fös verður svo haldið til höfuðborgar landsins, mikið rétt ,Rómar! Verð þar í nokkra daga að spóka mig um, ætla að reyna að kíkja á forseta landsins, þingið og fleira slíkt menningarlegt og skemmtilegt. Síðan var ætlunin að fara á rugby-landsleik. Ítalía er að leika við England, við vitum nú öll hvernig það fer. Ítalirnir eiga pottþétt eftir að drulla í brækurnar. Þetta verður örugglega svona eins og í WW2, fyrst í sókn - síðan í vörn- síðan þegar þeir eru að tapa þá flýta þeir sér og semja um jafntefli!
L8R