þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
11.30.2004
Svekkelski
Jæja, var að koma frá einum prófessornum hérna. Hún var mín eina von um að fá að taka próf í des. Var mín eina von, mikið rétt. Hún er það eigi lengur. Ég verð því bara að sætta mig við að læra í jólafríinu, meiriháttar fjör það. Það eina góða við að vera erasmusnemandi og taka próf í jan - feb - mars er að það býst greinilega enginn við neinu af manni hérna. T.d. þessi prófessor sem ég fór til í morgun, það kom henni mjög á óvart að ég hafði stundað tímana hennar því að yfirleitt gerir það enginn sagði hún ( veit ekki hvort hún átti við engan yfirhöfuð eða bara erasmusnema ) og svona til að hinta að ég þyrfti ekkert að vera að mæta þá tjáði hún mér að síðustu tímarnir hennar, í dag og á morgun, væru efni sem ekki væru til prófs fyrir mig! Er hægt að vera augljósari án þess að segja hlutina beint út, henni er alveg skítsama og nennir ekkert að vera að'essu rugli.

Verkföll eru annað sem mig langar soldið að tjá mig um. Hérna á Ítalíu er þetta nánast hversdagslegt að fólk fari í verkfall. Í dag er t.a.m. verkfall háskólakennara og annars starfsliðs háskólans. Samt sem áður eru einhverjir kennarar sem eru ekki í verkfalli og einhverjir starfsmenn sem eru ekki heldur í verkfalli þannig að maður veit ekkert hvort það eru tímar eða ekki, þetta er svo ógeðslega týpístk ítalskt eitthvað - allt í rugli og kaos. Ég hef því ákveðið að fara í mótmælaverkfall og fara bara ekkert í tíma í dag. Síðan á morgun er verkfall hjá strætó, rútum og lestum. Í síðustu viku voru læknar í verkfalli og dómarar líka. Berlusconi vinur minn er soldið mikið að gera í brækurnar held ég, hversu slæmt þarf ástandið að vera til að dómarar fari í verkfall?

Gærdagurinn fór allur í að læra ítalska réttarsögu, prófið sem ég var svo þokkalega að fara að massa í des, búinn að peppa mig upp í að fara í dauðalestur hérna. Fann m.a.s. lag sem hægt var að nauðga endalaust - aftur og tilbaka - svona lag sem maður tekur ekki lengur eftir að sé í gangi á meðan maður les. Peppunin dó heldur betur eftir heimsóknina í morgun, stemmari johnson r.i.p. Ætli maður fari ekki bara að hlaupa og lyfta alla daga núna til að reyna að komast í sama form og Vic ( eiiiiiinmitt...... )

Á morgun er svo áætlað að halda íslenskt matarboð hérna í kommúninni minni. Ég ætla að gera heiðarlega tilraun til að elda hangikjöt og kartöflu-mysing eða hvað þetta nú heitir, ekki kartöfulumús heldur hitt.... Síðan verður nottla boðið upp á týpískan íslenskan drykk að hætti hússins eftir á, brennivín. Spennandi að sjá hvernig það rennur oní liðið.

Over and out
|
Comments: Skrifa ummæli