þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
9.11.2004
Döjöfelsins snilld!
Dagurinn í dag var nú meiri snilldin. Byrjum samt á gærdeginum fyrir mjög svo áhugasama. Fór í skólann kl 5, meiriháttar tímasetning og var búinn kl. 8. Fór þá út að borða með erasmusum. Fyrir þá sem vilja vita þá taldi kappinn sig hafa séð eitthvað hreyfast inni í eldhúsi stelpunnar sem erasmusarnir hittust allir heima hjá áður, síðar um kvöldið þá hitti hópurinn stelpu sem hafði víst búið þarna í fyrra. Svo fór hún að tala um hvort stelpan sem býr þar núna hefði orðið vör við drauginn. Kappanum brá heldur betur í brún. Kemur þá á daginn að það sem kappinn var var við inni í eldhúsi, eitthvað sem var eins og einhver að horfa á en um leið og kappanum var litið inn í eldhúsið þá hvarf sá hinn sami, var helvítis draugurinn!! Kappinn svór við heilagan Benedetto að ekki stíga fæti oftar inn í þetta hús. Síðan var haldið út á lífið en kappinn tók því mjög rólega, enda hvort sem er útúrdópaður af einhverjum lyfjum sem hann er á vegna megakvefs aldarinnar. Lyfin eru að virka og kvefið er svo gott sem farið ( fyrir þá sem ekki hafa náð því nú þegar þá er umfjölluninni um kvefið beint sérstaklega til móður kappans sem er alveg að fara yfir um af stressi vegna þess ). Hélt kappinn heim á leið um kl. 12 í gærkveldi og horfði á ítalska grínmynd sem heitir svo mikið sem Non ci resta che piangere og er bara helvíti góð.
Eins og kom fram í upphafsorðum dagsins í dag þá er dagurinn í dag búinn að vera djöfulsins snilld. Byrjaði kappinn á að fara upp 498 tröppur til að komast ofan á turn. Þegar þangað var komið var tekin u.þ.b. 15 mín pása áður en gengnar voru aðrar 498 tröppur niður. Bent skal á að þessi æfing kostaði kappann 3 euros sem þýðir að þetta er mun ódýrara en stigavélin í WC. Jón Arnar ætti að kanna hvort hann komist upp tröppurnar án þess að meiðast, ólíklegt...
Eftir þessa menningarferð var haldið í listasafn Morandi. Fyrir þá sem ekki þekkja hann skal bent á þessa síðu hérna. Í stuttu máli var þetta maður sem hafði sínar skoðanir og teiknaði skrifborð, epli, glas og vínflösku. Einnig svaf hann í rúmi og málaði á kanvas, 30 x 40. Mjög svo athyglisverður maður. Fyrir þessa kúltúrferð greiddi kappinn 2 euros. Síðan hélt kappinn ásamt Wales-kum strák á götufestival. Þarna byrjaði snilldin fyrir alvöru. Heil gata hér í borg var lögð undir megaparty! Án gríns, íbúar götunnar höfðu allir búið til mat og keypt vín og gos og kappinn veit ekki hvað og hvað. Síðan var bara öllum gangandi vegfarendum boðið upp á ókeypis mat, vín, gos, skemmtiatriði, rokkhljómsveitir og svoleiðis, þetta var alger snilld. Kappinn gleymdi því miður myndavél en hún verður tekin með í kvöld þar sem stefnan er sett á Parco Nord. Þar verður megaveisla fyrir alla bæjarbúa sem fagna einhverju sem kappinn hefur ekki hugmynd um, enda svosem ekki það sem skiptir máli! Eftir þetta götufestival hélt kappinn ásamt öðrum erasmusum í knattspyrna og auðvitað setti kappinn mark sitt á leikinn, skoraði eitt og gerði aðra góða hluti sem hér skulu látnir ósagðir. Í kvöld er eins og áður sagði stefnan sett á Parco Nord en þangað hyggst kappinn fara ásamt erasmusum og nokkrum ítölum sem búa með honum. Fleiri var það nú ekki í bili gott fólk þannig að kappinn segir einfaldlega...

over and out
|
Comments: Skrifa ummæli