þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
8.19.2004
LÁRUS!!!
Lalli var að gera góða hluti í gær. Kappinn skellti sér á völlinn í gær ásamt nokkrum öðrum frægum stjörnum. Nægir þar að nefna söngleikjaleikarann og laganemann Benedikt, knattspyrnuhetjuna og laganemann Boga, læknanemann - Svíþjóðarfarann og fyrrum körfuknattleikshetjuna Sæmund og handknattleiksstjörnuna og verkfræðinemann Þórólf. Fengu félagar kappans, ásamt hjarkærum föður kappans, systur hans og verðandi mági, mikið fyrir peninginn á Laugardalsvellinum. Þvílíkur leikur! Þetta var alger snilld. Kappinn mætti reyndar í ítölskum búning sem var mjög sniðugt fyrstu 4 mínútur leiksins, síðan ekki. Meggimegg var á kantinum, tók í félagann á kappanum, líkt og siðprúðir menn gera á áhorfendapöllum erlendis. Leikurinn fór nú 2 - 0 fyrir íslendingum, hvern hefði grundað það? Kappinn var þokkalega sáttur enda rúllaði ísland yfir ítalina í fyrri hálfleik. Let´s face it, ítalska landsliðið í fótbolta er svona eins og íslenska landsliðið í handbolta, dettur inn á góða leiki en þess á milli er það með drulluna upp á bak, þrátt fyrir allar stjörnurnar. Kappinn hyggst breyta þessu í væntalegri ítalíuför sinni. Það markverðasta sem gerst hefur síðustu daga var án efa klósettferð hans í gær. Kappinn hafði farið í Kringulna að versla sér nýja heddfóna og var að prófa þá á kamrinum. Síðan vildi ekki betur til en svo að Mp-3 spilari kappans datt ofan í helv#&$% dolluna!!! Gott að ekki var það fyrir að fara öðru en úrgangi í vökvaformi enda fór mikið hagsmunamat fram á örfáum sekúndubrotum. To be or not to be.... ofaní fór hönd kappans... spilarinn virkaði nú ekki það sem eftir var gærdagsins þrátt fyrir nýtískulegar þurrkunaraðferðir, s.s. handklæðaþurrkun, hárblásaraþurrkun og úti-á-svölum-í-sólinni þurkkun. Sifja og erfða er að meika það þessa dagana og því lítið að gerast. Ekkert alltof leiðinlegt að sitja úti í garði með eyrnatappa að lesa í sólinni.
Annars er mest lítið að frétta héðan af nesinu... Vic er kominn með nýjan síma, svona fyrir þá sem hafa áhuga á að vita það...

over and out
|
Comments: Skrifa ummæli