Kappinn tilkynnir lækkun á forgjöf. Á besta degi sumarsins, í gær, þótti kappanum tilefni til að lækka forgjöf sína enn frekar. Ákvað hann því að fá yfir 40 punkta sem gekk eftir og endaði hann með 43 punkta eftir 18 holur. Best þótti kappanum við þetta að ekki skráði hann hringinn sjálfur heldur einhver roskinn maður með smá skalla. Hélt sá hinn sami reyndar skor allra í hollinu. Menn með forgjöf 10 - 20 mega því fara að vara sig á kappanum... (kappinn vill ekki sjá einhver skítakomment um að það þurfi að toppa í mótum og fleira slíkt)