þett´er bara rugl!!!
Archives


Links

BLOGG-ers
Kappinn
8.06.2004
27 days...
Góðan daginn úr höfuðstöðvum Bjögga kóngs!
Fór á bíó í gær með mixernum, maggamagg, skulda pein og freyfríði hans. Byrjum á byrjuninni. Myndin ber nafnið The Village, eða þorpið eins og það útleggst í íslenskri þýðingu. Glöggir lesendur hafa e.t.v. þegar getið sér til þess að myndin fjalli um eitthvert þorp. Við skulum átta okkur á einu til að hafa það alveg á hreinu, þessi mynd er eitt argasta leiðindadrasl sem hægt er að bjóða upp á. Á endanum fjallar hún um ástina og hvernig amish fólk býr. Já það er rétt, punktur þar og ekkert meir því hún er ekki um neitt annað í raun og veru. okok, kannski smá spooky verur í einhverjum skógi við þorpið en botnin tók nú fljótlega úr varðandi þær og þá var ástin ein eftir. Mjög rómó.... Fyrir þá sem vilja sjá amish-pimp smella hér. Hápunktur bíóferðarinnar var líklegast í byrjun, áður en myndin var byrjuð, en þá hrasaði torinn. Fleiri orð skulu eigi höfð um mynd þessa.
Annars er ekki mikið í gangi þessa dagana, jafnvel að kappinn skelli sér í gallann í kvöld og kíki á skrifstofuna, svona til að breyta til. Kafteinninn verður líklega með í för. Verið er að vinna í kommentakerfinu, menn frá IBM að tékka á þessu fyrir kappann. Þeir halda að þetta vesen tengist eitthvað stýrikerfinu, nánar tiltekið á smáranum sem leiðir upp í heddpakkninguna þar sem drive-plöggið er. Læt ykkur vita seinna hvernig þetta fer...

over and out

fyrir aðdáendur kvennaknattspyrnu mæli ég með þessu hér
|
Comments: Skrifa ummæli